Viðskipti

Hve lengi tekur sjórinn við?

Björn Brynjúlfur Björnsson

2025-04-03 11:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

ríkisstjórn hefur ekki setið auðum höndum fyrstu 100 daga sína. Mikil áhersla hefur verið lögð á sjávarútveginn, síðast með áformum um tvöföldun veiðigjalds. Til viðbótar hefur hækkun kolefnisgjalds verið boðuð, nýjar reglur um upplýsingagjöf og eignatengsl kynntar og loforð gefið um auknar strandveiðar. En hver verða áhrif þessara fjögurra aðgerða á greinina?

Tvöföldun veiðigjalds

Stjórnvöld áætla hækkun veiðigjalda muni skila um 10 milljörðum króna aukalega í ríkiskassann á ári. Þessi skattahækkun, því veiðigjöld eru sannarlega skattur, mun hafa íþyngjandi áhrif á útgerðir landsins. Samkvæmt áhrifamati frumvarpsins getur skattbyrði einstaka stofna margfaldast, jafnvel þótt heildaráhrifin á greinina séu tvöföldun.

Hækkunin kemur með nokkuð skömmum fyrirvara og mun draga úr getu sjávarútvegsfyrirtækja til fjárfestinga og arðgreiðslna. Þá er útfærsla hækkunarinnar með þeim hætti hún dregur úr hvötum til starfrækja fiskvinnslu a Íslandi, með fyrirséðum neikvæðum afleiðingum á byggðir víða um land.

Hækkun kolefnisgjalds

Á sama tíma leggur ríkisstjórnin til 25% hækkun kolefnisgjalds, ofan á 60% hækkun sem þegar hafði verið samþykkt í fjárlögum fyrir árið 2025. Samanlagt jafngilda þessar tvær hækkanir tvöföldun kolefnisgjalds á skömmum tíma.

Kolefnisgjald á vera liður í orkuskiptumen þau eru einfaldlega ekki raunhæf fyrir sjávarútveg með núverandi tækni. Fyrirtækin hafa því engin úrræði til komast hjá gjaldinu og því verður það í raun hefðbundin skattheimta, án tengsla við umhverfisstefnu.

Kvaðir um upplýsingagjöf

Áform eru uppi um innleiða nýjar reglur um upplýsingaskyldu tengdra aðila í sjávarútvegi, þar sem aðilum í greininni er gert skila skýrslu um eigendur á þriggja mánaða fresti, og víðtækri skilgreiningu á tengslum milli aðilajafnvel þar sem slík tengsl væru ekki talin til staðar í öðrum atvinnugreinum.

Þetta felur í sér mismunun gagnvart greininni, leggur þyngri byrði á smærri útgerðir og dregur úr hagkvæmni hjá þeim stærri. Þessar nýju kvaðir eru því til þess fallnar draga úr krafti íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.

Auknar strandveiðar

Við myndun ríkisstjórnarinnar voru kynnt áform um tryggja 48 daga strandveiðar. Til því þarf færa aflaheimildir úr aflamarkskerfinu yfir í strandveiðikerfið.

Slík tilfærsla færir verðmæti frá þeim sem nýta auðlindina best yfir til óhagkvæmari veiða. Þeir sem greitt hafa fyrir aðgang auðlindinni munu sitja eftir með minna, en þeir sem ekki hafa greitt munu njóta góðs af. Afleiðingin verður minni hagkvæmni og verri afkoma fyrir greinina í heild.

Hve lengi tekur sjórinn við?

Framangreindar aðgerðir ríkisstjórnarinnar leggjast ofan á nýjan 10% innflutningstoll sem bandarísk stjórnvöld hafa lagt á Ísland. Það mun draga úr eftirspurn eftir sjávarfangi á einum mikilvægasta útflutningsmarkaði íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.

Stundum er sagt lengi taki sjórinn við. En þegar litið er til samverkandi áhrifa tveggja skattahækkana, nýrra upplýsingakvaða, skertra aflaheimilda og síðast tollmúra vaknar upp spurningin: hve lengi?

Á einhverjum tímapunkti munu allar þessar aðgerðir draga svo úr þrótti íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja skatttekjur vegna greinarinnar munu dragast saman til lengri tíma litið. Þá eru ótalin neikvæð áhrif á þau störf, byggðalög og það fólk sem nýtur góðs af starfsemi þessara fyrirtækja í dag.

Í stað þess rugga bátnum með þessum hætti væri farsælli stefna stjórnvalda bæta rekstrarumhverfi sjávarútvegsins í ljósi þeirrar ógnar sem steðjar greininni í formi tollmúra. Þannig tryggjum við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki geti áfram siglt á mið útflutningsmarkaða, samfélaginu öllu til heilla.

Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 582 eindir í 35 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 34 málsgreinar eða 97,1%.
    • Margræðnistuðull var 1,53.