Segir Ingu vega að starfsheiðri sínum

Ritstjórn mbl.is

2025-03-31 17:47

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ársæll Guðmundsson, skólastjóri Borgarholtsskóla, segir mjög ósmekklegt hvernig Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hafi vegið hans starfsheiðri með því spyrja opinberlega hvort hann hafi gerst sekur um trúnaðarbrest.

Inga, sem er ráðherra félags- og húsnæðismála, hefur sagt hún hafi ekki ýjað ítökum innan lögreglunnar í símtali sínu við Ársæl.

Ársæll segir aftur á móti Inga verði bera ábyrgð á sínum orðum, en hann ætli ekki tjá sig um efnistök símtalsins.

Þetta kemur fram í samtali Ársæls við mbl.is um nýjustu ummæli Ingu.

Mér þótti mjög miður sjá ráðherra vega mínum starfsheiðri. Mér fannst það ómaklegt, segir Ársæll í samtali við mbl.is.

Ekki tjáð sig um símtalið opinberlega

Í samtali við Samstöðina spurði Inga hvort Ársæll hefði brotið trúnað í tengslum við samtal hennar við Ársæl.

Ég hef ekkert tjáð mig um þetta símtal eða þetta mál og hef kosið gera það ekki. Ég hef heldur ekki tjáð mig um nemendur skólans og mér þykir það mjög leitt lesa það eftir ráðherra það verið vega mínum starfsheiðri. Það finnst mér ósmekklegt, segir Ársæll.

Samkvæmt heimildum mbl.is ræddi skólameistarinn um símtalið sem hann átti við Ingu við starfsmenn en Ársæll hefur sjálfur aldrei tjáð sig um símtalið opinberlega.

Á Inga hafa bent skólameistaranum á stöðu hennar í samfélaginu og ítök sín í lögreglunni vegna týnds skópars barnabarns hennar.

Ársæll ítrekar í samtali við mbl.is hann ætli ekki tjá sig opinberlega um efnistök símtalsins.

Ræddi við starfsmenn um símtalið

Inga sagði í viðtali á Samstöðinni skólameistarinn hefði ekki átt tjá sig um samtalið þeirra á milli.

En hafa einhvern tíma fjölmiðlar verið skoða það hvort þessi ágæti skólastjóri braut trúnað gagnvart nemandanum? spurði Inga.

En hún virðist vera vísa í þarna þú átt hafa rætt þetta símtal við starfsmenn skólans. Er það ekki rétt?

Það er alveg ljóst, alveg sama hvort það er þetta mál eða eitthvað annað, ef ég fer af stað biðja fólk um gera eitt eða annað þá vita starfsmenn af öllum málum. Hvort sem það er þetta mál eða eitthvað annað. Öll mál eru rædd og tekin fyrir og reynt afgreiða. Allir starfsmenn mínir eru bundnir þagnarskyldu og mér þykir mjög miður einhver hafi verið tjá sig við fjölmiðla.

Ég veit ekkert hver það er, það er ekki ég allavega. Þannig mér þykir það mjög leitt-ég er með 150 starfsmenn- einhver hafi verið tjá sig um málefni forráðamanna eða nemenda. Það á ekki gera það og ég geri það ekki og starfsfólk á ekki gera það heldur, segir Ársæll.

Hún verður bara bera ábyrgð á sínum orðum

Þó Ársæll hafi aldrei opinberlega tjáð sig um efni símtalsins þá hefur Inga haldið því fram opinberlega hún hafi ekki ýjað ítökum hjá lögreglu í samtali sínu við Ársæl.

Hún verður bara bera ábyrgð á sínum orðum, segir Ársæll en vill ekki svara því hvort Inga hafi nefnt lögregluna í þessu margumrædda símtali.

Ég er búinn vera í þessu í fjörutíu ár. Starfað fyrir hag barna og ungmenna og þetta þykir mér mjög ómaklegt heyra, segir Ársæll um orðræðu Ingu.

Nafnalisti

  • Ársæll Guðmundssonskólameistari Borgarholtsskóla
  • Inga Sælandformaður
  • Ingi SælandFlokkur fólksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 589 eindir í 31 málsgrein.
  • Það tókst að trjágreina 27 málsgreinar eða 87,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.