Stjórnmál

Orðið á götunni: Uppnám í Hádegismóum

Eyjan

2025-04-01 14:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Orðið á götunni er uppnám hafi orðið á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins í Hádegismóum í gær. Forsaga málsins er Kolbrún Bergþórsdóttir birti í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins þrumupistil þar sem hún fer hörðum orðum um Sjálfstæðisflokkinn, einstaka þingmenn hans og ekki síst þingflokksformanninn, Hildi Sverrisdóttur, fyrir framgöngu flokksins í máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur.

Kolbrún skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið gera þetta mál pólitísku máli. Það skal djöflast í forsætisráðherra eins og hægt er og saka Kristrúnu Frostadóttur um illar hvatir. Flokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Hildur Sverrisdóttir, hefur komist nálægt því gjaldfella sjálfa sig með stöðugu rápi upp í ræðustól Alþingis og farið þar með sömu fáránlegu ásakanirnar um meint trúnaðarbrot og lygar forsætisráðherra.

Hún heldur áfram: Maður hlýtur spyrja sig á hvaða leið Sjálfstæðisflokkurinn . Þjóðin hafnaði flokknum rækilega í síðustu kosningum og sitthvað hefðu sjálfstæðismenn átt læra af því. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa hjalað um það í allnokkurn tíma breikka þurfi flokkinn og koma stefnumálum vel til skila svo þjóðin fáist til kjósa flokkinn. virðist enginn hafa tíma til sinna þessum brýnu verkefnum því það er talið svo ofur nauðsynlegt gala á forsætisráðherrann.

Þá skammar Kolbrún Jón Gunnarsson fyrir mafíósa-tal og hnykkir síðan út með því óska flokknum langrar setu í stjórnarandstöðu, enda flokkurinn nálægt því vera óstjórntækur.

Þessi skrif Kolbrúnar virðast hafa farið alvarlega fyrir brjóstið á ritstjóra Morgunblaðsins, enda er blaðið málgagn Sjálfstæðisflokksins og almennt illa séð blaðamenn tuski flokkinn til, líkt og Kolbrún gerði um helgina.

Orðið á götunni er Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra, hafi verið sendur út af örkinni til eiga lítið samtal við Kolbrúnu og leiða henni fyrir sjónir óæskilegt gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn og þingflokksformann hans með svo beinskeyttum hætti. Sérstaklega mun hafa sviðið undan orðum Kolbrúnar um stöðugt ráp þingflokksformannsins upp í ræðustól Alþingis með með sömu fáránlegu ásakanirnar um meint trúnaðarbrot og lygar forsætisráðherra.

Orðið á götunni er Andrési hafi ekki tekist halda samtalinu við Kolbrúnu á jafn lágstemmdum nótum og var stefnt. Viðbrögð hennar hafi verið snögg og afdráttarlaus og langt frá þeim tónstyrk sem Andrés lagði upp með. Ekki hafi farið fram hjá neinum nærstöddum er hún þrumaði yfir Andrési ef yfirmenn blaðsins hefðu eitthvað við hennar skrif athuga yrðu þeir einfaldlega reka hana. Hún væri með sex mánaða uppsagnarfrest sem þeir mættu þá gera sér góðu borga.

Orðið á götunni er það hafi verið niðurlútur Andrés Magnússon sem fór á brott með þessi skilaboð Kolbrúnar Bergþórsdóttur til yfirstjórnar blaðsins. Spennandi verði í framhaldinu fylgjast með því hver vinni störukeppnina sem hafin er í Hádegismóum

Nafnalisti

  • Andrés Magnússonframkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Hildur Sverrisdóttirfyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
  • Kolbrún Bergþórsdóttirblaðamaður á Fréttablaðinu
  • Kolbrún Jón
  • Kristrún Frostadóttirformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 464 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 89,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.