Stjórnmál

Mennta­kerfi með ó­mark­tækar ein­kunnir

Björn Brynjúlfur Björnsson

2025-03-07 07:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Frumvarp Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, um námsmat er til meðferðar á Alþingi. Í frumvarpinu leggur hún til skólaeinkunnir verði notaðar sem lokamat grunnskóla á færni nemenda þegar þeir klára 10. bekk.

Þetta sætir furðu í ljósi þess skólaeinkunnir eru ósamanburðarhæfar á milli skóla. Þannig segir rannsókn Menntamálastofnunar frá 2022 35% nemenda búa við það [skólaeinkunn] þeirra er líklega umtalsvert lægri eða hærri en hefði verið í öðrum skóla. […] Ósamræmi er í hvernig námsmati er beitt eftir skólum. Önnur rannsókn sömu stofnunar staðfesti þráláta einkunnaverðbólgu skólaeinkunna jafnvel þótt skipt hefði verið úr tölustöfum yfir í bókstafi til reyna sporna við henni.

Frumvarp ráðherra þýðir því enginn samanburðarhæfur mælikvarði verður til um gæði skólastarfs eða færni barna við lok grunnskólagöngu. Þá verður umsóknum barna um framhaldsskólavist forgangsraðað út frá einkunnum sem eru ósamanburðarhæfar. Afleiðingin er brotið verður gegn reglu um jafnræði óháð búsetu, bæði á meðan grunnskólagöngu stendur og einnig við innritun í framhaldsskóla.

Hver eru rök ráðherrans fyrir þessu? Í umræðum um málið á Alþingi nefnir hún tvö atriði: Svo er það náttúrlega líka ekki gott vera með samræmd próf í 10. bekk því þá fer allur veturinn í kenna út frá því. […] Svo er líka hætta á því samræmd lokapróf […] leiði til einsleits nemendahóps […] Framhaldsskólar verða líka taka ábyrgð á því stuðla fjölbreyttu samfélagi.

Fyrri röksemdin stenst ekki skoðun. Samræmd próf kanna færni nemenda samkvæmt aðalnámskrá, til dæmis í lestri, reikningi og náttúruvísindum. Ef kennsla snýst um tryggja nemendur nái hæfniviðmiðum aðalnámskrár er það einmitt til marks um prófin virki sem skyldi. Heilbrigt skólastarf byggir á skýrum hæfniviðmiðum og kennarar stýra síðan sinni kennslu með þau í huga.

Seinni röksemdin gengur út frá því yfirvöld eigi tryggja fjölbreytni í nemendahópum frekar en einstaklingar komist áfram á eigin verðleikum. Þessi afstaða virðist byggja á úreltum hugmyndum um jafnar útkomur fremur en jöfn tækifæri. Það er ekki hlutverk stjórnvalda stýra samsetningu nemendahópa framhaldsskóla út frá óskýrum hugmyndafræðilegum markmiðum. Stjórnvöld eiga tryggja jafnræði: öll börn eiga njóta sanngjarns og gagnsæs mats á færni sinni og hafa sömu tækifæri til komast áfram á eigin verðleikum.

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis fjallar um frumvarp ráðherra. Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn þar sem við leggjum til samræmd próf verði notuð sem lokamat grunnskóla í stað skólaeinkunna. Vonandi verður breyting veruleika. Færni og framtíðartækifæri grunnskólabarna eiga vera undir þeim sjálfum komin. Það leiðir til betri árangurs bæði fyrir nemendur og skólakerfið í heild.

Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 469 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 25 málsgreinar eða 96,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.