Stjórnmál

Kosið í skugga Trumps

Ritstjórn mbl.is

2025-03-11 10:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Grænlendingar ganga í dag kjörborðinu og kjósa 31 nýjan þingmann á Inatsisartut, grænlenska þinginu.

Úrslitin gætu varpað ljósi á hvenær þjóðin, sem telur 57 þúsund manns, mun sækjast eftir sjálfstæði frá Dönum sem meirihluti Grænlendinga styður.

Kosningarnar í ár eru haldnar í skugga nýs Bandaríkjaforseta sem hefur heitið því tökum á eyjunni með einum eða öðrum hætti.

Vilja ekki Trump

Hans Kaali Davidsen, íbúi í grænlensku höfuðborginni Nuuk, segir Grænlendinga ekki hafa áhuga á Donald Trump Bandaríkjaforseti taki Grænland yfir.

Trump, hvernig hann hefur farið með sín eigin stjórnmál og sitt eigið land og hvernig allt er þróast í Bandaríkjunumnei, við viljum hann ekki, segir Davidsen við fréttastofu AFP.

Hann segir áhuga forsetans á Grænlandi þó hafa varpað athygli heimsbyggðarinnar á norðurslóðir.

Allir eru einblína á okkur. því leytinu til er þetta jákvætt.

Tímalínan óskýr

Yfirgnæfandi meirihluti Grænlendinga eru Inúítar, eða tæp 90%. Grænlendingar hafa lengi lýst óánægju sinni með framkomu danskra stjórnvalda gagnvart þjóðinni.

Allir stærstu flokkarnir sem keppast um atkvæði Grænlendinga eru hliðhollir sjálfstæði. Eini ágreiningurinn er um hve fljótt það gæti raungerst.

Stjórnarandstöðuflokkurinn Naleraq vill Grænlendingar sækist eftir sjálfstæði sem fyrst. Vinstri flokkarnir Inuit Ataqatigiit og Siumut, sem skipa meirihlutann, vilja frekar bíða eftir því fara fram á sjálfstæði þar til eyjan er fjárhagslega sjálfstæð.

Sjaldgæfir málmar gætu hjálpað

Grænlendingar reiða sig einna helst á sjávarútveginn, en sjávarafurðir telja næstum allan útflutning eyjunnar.

Einn fimmti af vergri landsframleiðslu landsins eru ríkisstyrkir frá Danmörku.

Helstu talsmenn þess Grænlendingar sæki um sjálfstæði hið fyrsta benda á Grænlendingar muni bráðum meira fjárhagslegu sjálfstæði vegna vinnslu á sjaldgæfum málmum úr jörðu en slíkt hefur farið vaxandi undanfarin ár.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Hans Kaali Davidsen
  • Inatsisartutþjóðþing
  • Inuit Ataqatigiitvinstriflokkur
  • Naleraqflokkur
  • Siumutjafnaðarmannaflokkur
  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 312 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.