Íþróttir

Svekktur með sitt hlut­skipti en gengur í takt með hópnum

Aron Guðmundsson

2025-03-22 11:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stefán Teitur Þórðarson var svekktur með byrja ekki fyrri leik Íslands gegn Kósovó í umspili fyrir sæti í B-deildar Þjóðadeildarinnar í fótbolta líkt og hver einasti leikmaður í landsliðinu hefði verið. Hann metur möguleikana fyrir seinni leikinn mikla og segir samstaða hópsins það sem geti skilað liðinu langt.

Ísland tapaði fyrri leiknum gegn Kósovó ytra 21 og þarf því vinna upp eins marks forystu í seinni leik liðanna hér í Murcia á morgun.

Stefán Teitur, sem leikur með Preston North End í ensku B-deildinni byrjaði á bekknum en kom inn í seinni hálfleik og metur frammistöðu liðsins í leiknum kaflaskipta.

Fyrri hálfleikur var flottur, við vorum setja það sem Arnar vill inn í liðið nokkuð vel. Vorum finna miðjumennina ágætlega og markið sem við skoruðum var frábært. Virkilega vel gert hjá Ísaki og Orra. Við hefðum þurft gera meira af þessu en þetta tekur smá tíma. Við þurfum læra mjög hratt og við þurfum bara fullkomna það sem við eigum gera í næsta leik.

Líkt og aðrir leikmenn liðsins hefðu verið var Stefán Teitur svekktur með byrja á bekknum í fyrsta landsleik Íslands undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar.

hundrað prósent svekktur en svona er þetta. Miðjan er ein af þeim stöðum hjá okkur núna sem er gríðarleg samkeppni í. Við erum með marga leikmenn sem eru spila mjög vel í sínum félagsliðum. Svona er þetta bara, maður þarf vera klár og ég tel við komum allir inn í landsliðsverkefni með það hugarfar það er hópurinn sem skilar okkur langt. Það sást í fyrri leiknum við þurfum vera klárir þegar við komum inn á og reyna breyta leikjum. Því miður gerðist það ekki þannig séð í fyrri leiknum en við þurfu bara halda áfram.

Viðtalið við Stefán Teit í heild sinni, þar sem hann ræðir möguleika Íslands fyrir seinni leikinn, innkomu Arnars Gunnlaugssonar og endurkomu Jóhanns Bergs sem og félagsliðaboltann í Englandi með Preston North End sjá hér fyrir neðan.

Seinni leikur Íslands og Kósovó í umspili fyrir sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 Sport á morgun og hefst klukkan fimm. Upphitun fyrir leikinn hefst hálftíma fyrr, nánar tiltekið klukkan hálf fimm.

Nafnalisti

  • Arnarfrystitogari
  • Arnar Gunnlaugssonþjálfari
  • B-deild1. sæti
  • ÍsakSnær Þorvaldsson
  • Jóhann BergurGuðmundsson
  • Orri13 ára og 354 daga gamall en metið
  • Preston North Endlið
  • Stefán Teitur ÞórðarsonSkagamaður
  • Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 392 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 94,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,77.