Stjórnmál

Einar Kárason deilir átakanlegri frásögn um ekkju sem þurfti að losa sig við besta vin sinn og huggara - „Hann hafði engar röksemdir“

Ritstjórn DV

2025-04-03 21:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland, félags- og húsnæðisráðherra, mælti þann 31. mars fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús. Frumvarpið felur í sér ekki lengur verður gerð krafa um samþykki annarra eigenda íbúða í fjölbýlishúsum fyrir gæludýrahaldi, jafnvel þótt íbúðir deili sameiginlegum stigagangi.

Skiptar skoðanir eru á frumvarpinu en til dæmis er félag ofnæmis- og ónæmislækna á móti þessum breytingum og eins hefur Astma- og ofnæmisfélag Íslands kallað eftir víðtæku samráði þeirra sem eiga hagsmuna gæta.

Einar Kárason, rithöfundur, birti á Facebook í dag áhugaverða sögu sem lýsir því hvernig núverandi fyrirkomulagi er stundum beitt með fjandsamlegum hætti. Hann segir sögu ekkju sem var gert losa sig við besta vin sinn, ekki út af ofnæmi heldur bara út af leiðindum. Einar fagnar fyrirhuguðum breytingum.

Þetta með bann við gæludýrum í fjölbýli: Kona sem ég þekki býr í blokk með eldra fólki og sagði mér frá því þangað flutti fyrir ekki löngu síðan önnur kona sem var þá nýorðin ekkja. seldi húsið eftir hafa misst manninn og keypti þarna í blokkinni og flutti inn með litla hundinn sinn sem þau hjón höfðu átt. Þetta var smáhundur sem komst fyrir í tösku og þannig hafði hún hann á leið gegnum sameignina er hún fór með hann út, annars var þetta gæfa og glaðlega dýr inni í íbúð konunnar.

Konan hafði ekki varað sig á það þurfti samþykki allra annarra íbúa fyrir dýrahaldi. Allir í blokkinni voru vel sáttir við þessa tilhögun, enda káfaði dýrið ekkert uppá þá, nema einn kall. Einn þverhaus sem vildi nota sér réttinn til banna dýrið, láta farga því. Hann hafði engar röksemdir, ekkert ofnæmi eða neitt, þetta var bara svona leiðindaskarfur eins og víða eru til. Og ekkjan varð láta frá sér litla hundinn, besta vin sinn og huggara.

Það er gott ef ríkisstjórnin ætlar milda svona ömurlega þversum og mannfjandsamlega löggjöf.

Nafnalisti

  • Einar Kárasonrithöfundur og fyrrverandi varaþingmaður Samfylkingarinnar
  • Facebookbandarískur samfélagsmiðill
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 336 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.