Trump valdi hana – Nú eru MAGA-liðar æfir út í hana
Ritstjórn DV
2025-03-14 04:11
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Allt frá því að Donald Trump skipaði Amy Coney Barrett sem dómara við hæstarétt Bandaríkjanna hefur hún greitt atkvæði með málum sem eru honum hugleikinn. Hún greiddi meðal annars atkvæði því að ógilda hinn sögulega „Roe v. Wade“ dóm sem hafði tryggt konum aðgang að þungunarrofi síðan 1973.
En að undanförnu hefur Barrett tekið afstöðu gegn ýmsum óskum Trump. Meðal annars greiddi hún atkvæði gegn því að ríkisstjórn hans mætti hætta að greiða erlendum hjálparsamtökum fyrir vinnu sem þau höfðu þegar lokið.
Þetta hefur reitt marga í aðdáendaskara Trump, MAGA hreyfingunni, til reiði að sögn NBC News.
„Hún er ruglaður lagaprófessor með höfuðið uppi í. ,“ skrifaði Mike Davis á X en hann var eitt sinn aðstoðarmaður Neil Gorsuch hæstaréttardómara. Hann segir Barrett vera „veikburða og huglausa“.
Jack Poso, hægrisinnaður áhrifavaldur, og Laura Loomer, skrifuðu að Barrett hafi verið hluti af ráðningu fólks, sem styður fjölbreytileika og réttindi minnihlutahópa en það er eitthvað sem Trump fellur ekki. Loomer birti mynd af fjölskyldu Barrett með færslu sinni en hún á sjö börn, tvö þeirra voru ættleidd frá Haítí.
Nafnalisti
- Amy Coney Barrett48 ára gamall dómari við áfrýjunardómstól 7. svæðis
- Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
- Jack Poso
- Laura Loomer
- Mike Davis
- NBC Newsbandarísk fréttastöð
- Neil Gorsuchdómari
- Roedómur
- Wadelíklega þekktasta dómafordæmi Bandaríkjanna
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 189 eindir í 11 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 90,9%.
- Margræðnistuðull var 1,72.