Utanríkisráðherra fundaði með stjórnvöldum á Spáni

Innanríkisráðuneyti

2025-03-28 21:44

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Traust og umfangsmikið samstarf Íslands og Spánar á undanförnum árum, fyrirhuguð opnun sendiráðs Íslands í Madríd, og mikilvægi þess hugsanlegar verndarráðstafanir ESB í tollamálum nái ekki til Íslands á grundvelli EES-samningsins og náins samstarfs við ESB voru meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og José Manuel Albares utanríkisráðherra Spánar ræddu á fundi sínum í spænsku höfuðborginni í dag.

Ráðherrarnir ræddu einnig öryggis- og varnarmál Evrópu, stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs og þróun mannréttinda á heimsvísu.

Samstarf Íslands og Spánar byggir á traustum grunni og hefur aukist töluvert síðustu ár. Spánn er einn af okkar mikilvægustu útflutningsmörkuðum og þúsundir Íslendinga dvelja á Spáni á hverjum tíma til lengri eða skemmri tíma til lifa og njóta, segir Þorgerður Katrín. Einmitt þess vegna vinnum við hörðum höndum því koma á fót sendiráði Íslands í Madríd síðar á árinu, svo við getum þjónustað landa okkar betur og aukið um leið blómlegt samstarf okkar við Spán á fleiri sviðum.

Ísland og Spánn eru meðal þeirra ríkja sem leiða baráttuna fyrir kynjajafnrétti á alþjóðavettvangi og í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, þar sem ríkin vinna náið saman með líkt þenkjandi ríkjum.

Það er gríðarlega mikilvægt þjóðir eins og okkar vinni ötullega saman og þétti samstarfið enn frekar á tímum bakslags í mannréttindamálum, ekki síst hvað varðar jafnréttismál og réttindi hinsegin fólks, segir Þorgerður Katrín. Við munum nýta sameiginlega rödd okkar í mannréttindaráðinu, ásamt öðrum þjóðum sem deila okkar gildum, til tala hátt og berjast gegn þessari ömurlegu þróun.

Þorgerður Katrín átti sömuleiðis fund með Margarita Robles varnarmálaráðherra Spánar. Mikill vilji er til auka varnarsamstarf enn frekar á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og áætla Spánverjar sinna loftrýmisgæslu á Íslandi í sumar. Ráðherrarnir ræddu einnig stuðning ríkjanna við varnarbaráttu Úkraínu gegn innrásarstríði Rússlands.

Nafnalisti

  • EES-samningsinsvegið velferðarráðuneyti
  • José Manuel Albares
  • Margarita Roblesvarnarmálaráðherra Spánar
  • Samstarf Íslandsskýrsla
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 304 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 90,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.