Heilsa og lífsstíll

Nýr vett­vangur sam­skipta?

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir

2025-04-02 11:32

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Breska þáttaröðin Adolescence slær áhorfsmet á Netflix og hefur vakið fólk til umhugsunar um lífsaðstæður unglinga. Fyrstu skrefin út fyrir öryggi heimilisins eru iðulega stigin áður en nokkur veit af, reynslan leitar börnin uppi þegar við teljum þau í skjóli.

Áhrif samfélagsmiðla geta verið ógnvænleg, fyrir börn og fullorðna.

Hinir fullorðnu þurfa skoða eigin umgengni um miðlana. Það er ekki náttúrulögmál Facebook miðlægt fyrir öll félagsleg samskipti. Heimildarmyndin Social Dilemma (2020) var viðvörun og bætist við bók Sarah Wynn-Williams, Careless People, um hugarfarið í stjórnun þessa stærsta samfélagsmiðils heims. Hagur fólks og réttlátt samfélag er ekki í fyrirrúmi, athygli og ánetjun er hin dýrmæta söluvara.

Það er kominn tími til ræða hvað við getum gert. Er til dæmis eðlilegt reikningur á Facebook forsenda fyrir þátttöku í félagsstarfi á Íslandi? Er þörf á samfélagsmiðlum? Ef , þá til hvers? Hver væri óskastaðan?

Mér þykir ástæða til birta kveðjuorð mín við útskrift frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vorið 2019. Þótt fimm ár séu liðin eru skilaboðin jafngild. Ég hef breytt nöfnum nemendanna.

Kæru nemendur

Stolt foreldra ykkar og ástvina, framtíð þjóðarinnar, óendanlegt dýrmæti!

Gerið þið ykkur grein fyrir því hversu máttug þið eruð? Hvert og eitt ykkar býr yfir miklum krafti til hafa áhrif. Og ef nokkur ykkar tækju sig saman, gætuð þið breytt heiminum.

Hin unga sænska stúlka, Greta Thunberg, er gott dæmi um það hvernig hægt er breyta heiminum.

Hvernig virkjum við kraftinn sem í okkur býr?

Með því verja reglulega tíma með okkur sjálfum. Því okkar innri rödd segir okkur hvað skiptir mestu máli.

Gyrðir Elíasson fjallar í ljóði um mátt einverunnar:

Hugleiðing

Líklega er einmanaleikinn

nokkuð góður kennari

ef maður heldur það út

sitja í langdregnum

tímunum hjá honum

En hann mætti

forfallast oftar

mín vegna

Það er svo magnað bestu fáanlegar kennslustundir eru stundir sem við eyðum með okkur sjálfum. Best er ganga eða dvelja úti í náttúrunni og hafa engin hljóð í eyrunum. Þá heyrum við eintal sálar okkar. Úr einverunni fáum við svör við því sem skiptir máli í lífinu.

Verið dugleg sækja kennslustundir hjá einmanaleikanum!

En passið ykkur á sefjun samfélagsmiðlanna!

Sjálf hef ég lokað öllum reikningum á samfélagsmiðlum. Tók þátt í Facebook frá upphafi stofnaði reikning 2007 og hafði stofnað My space-reikning þar á undan. Þá var þetta spennandi, tákn um nýja tíma, saklaust. Síðan breyttist sýn mín á Facebook og aðra samfélagsmiðla.

Mér finnst ískyggilegt nokkrir einstaklingar úti í heimi, sem eiga þessa stóru samfélagsmiðla hafi upplýsingar í höndunum um okkur öll og séu sífellt gera sálfræðitilraunir á okkur þeir noti bestu fáanlega þekkingu til stýra hegðun okkartaki jafnvel þátt í leiða okkur á villigötur. Og við skulum af fúsum og frjálsum vilja leyfa þeim nota okkur!

Ég lokaði reikningum mínum þann 14. júlí fyrir ári síðan. Á degi frönsku byltingarinnar, degi sem er táknrænn fyrir lýðræðið sem við lifum í hér á Vesturlöndum og veitir okkur svo ótrúlegt frelsi.

Facebook, Snapchat og Instagram verða ekki eilíf, ekki frekar en nokkuð annað á Jörðu hér. Allt er breytingum háð. En við getum sjálf haft ótrúlega mikil áhrif á hlutir breytist hratt til hins betra.

Er ekki þjóðráð forrita nýjan samfélagsmiðil? Við gætum byrjað hér á Íslandi. Búið til nýjan miðil sem safnar hvorki né selur aðgang persónuupplýsingum okkar? Sem nýtir ekki djúpsálfræði til ginna okkur?

Hvað segið þið, Agnes, Magnús og Pétur? Getið þið ekki rætt þetta við kennara ykkar og samnemendur í tölvunarfræðinni þegar þið komið upp í háskóla? Facebook varð til í háskólasamfélagi fyrir rúmum tíu árum. Það er vel hægt endurtaka leikinn, en gæta þess hanna heiðarlegan miðil sem ekki er búinn til í þeim tilgangi stjórna hegðun okkar.

Vörum okkur á sefjun samfélagsmiðlanna!

Hugsum sjálfstætt og hlustum á okkar innri rödd!

Kæru nemendur! Góða ferð út í lífið.

Megi blessun fylgja ykkur alla tíð!

Höfundur er skólameistari.

Nafnalisti

  • Agnesópera
  • Careless People
  • Facebookbandarískur samfélagsmiðill
  • Greta Thunbergsænskur loftslagsaðgerðarsinni
  • Gyrðir Elíassonrithöfundur
  • Magnúsundanfari hugmynda og stofnunar fjölbrautaskóla
  • Péturformaður stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs
  • Sarah Wynn-William
  • Social Dilemmaheimildarmynd

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 727 eindir í 65 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 56 málsgreinar eða 86,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.