Fordæma seinagang mennta- og barnamálaráðuneytisins

Jakob Snævar Ólafsson

2025-04-02 11:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Allir bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ tóku undir harðorða bókun á bæjarstjórnarfundi í gær. Í bókuninni felst hörð gagnrýni og raunar er notað orðið fordæming vegna vinnubragða mennta- og barnamálaráðuneytisins. Samkvæmt bókuninni hefur umsókn frá fræðslustofnuninni Keili, sem staðsett er í bænum, um endurnýjun á því vera viðurkenndur einkaskóli á framhaldsskólastigi legið inni í ráðuneytinu mánuðum saman. Bókunin var lögð fram og samþykkt á síðasta fundi bæjarráðs en á bæjarstjórnarfundinum las Guðný Birna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar upp bókunina.

Í bókuninni segir erindi Keilis hafi legið inni í ráðuneytinu í 20 vikur og þau vinnubrögð séu fordæmd, enda það ekki í samræmi við góða stjórnsýslu. Bæjarráð leggi mikla áherslu á svokallað fjarnámshlaðborð og opna stúdentsbrautin í Keili verði sem fyrst viðurkennd enda hafi verið unnið í samráði við ráðuneytið því endurskilgreina Keili og vinna fjárhagslegum stöðugleika, og komi það því verulega á óvart ráðuneytið viðurkenni ekki Keili sem einkaskóla á framhaldsskólastigi.

Höfnun og endurmat

Ferill málsins er rakinn nánar í bókuninni. Þar segir Keilir miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs eins og skólinn heitir fullu nafni hafi óskað eftir endurnýjun á umsókn um verða viðurkenndur einkaskóli á framhaldsskólastigi til ráðuneytisins 12. nóvember 2024 og bíði enn endanlegra svara. Þann 16. desember hafi borist svar frá mennta- og barnamálaráðuneytinu þess efnis umsókn Keilis synjað vegna rekstrarvanda skólans síðustu ár og fjárhagsstaða hans slík Keilir uppfylli ekki skilyrði sem lúti fjárhagsmálefnum og tryggingum. Í bókuninni segir hins vegar þrátt fyrir Keilir hafi sýnt fram á skólinn rekstrarlega stöðugur, hafi ekki borist svar við endurmati á umsókninni. Sjö vikur séu síðan óskað hafi verið eftir endurmati í ljósi breyttrar rekstrarstöðu og tæpar 20 vikur séu síðan upphafleg umsókn var send til ráðuneytisins.

Þess geta á þessum 20 vikum hafa verið þrír mismunandi ráðherrar í ráðuneytinu.

Segir enn fremur í bókuninni samstarfssamningur varðandi háskólabrú, hjá Keili, hafi verið gerður við Háskóla Íslands til næstu 4 ára. Það nám falli undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Bæjarráð Reykjanesbæjar fagni þeim samningi og telji farsælt vera í samstarfi við um námið.

lokum skorar bæjarráð Reykjanesbæjar á ráðherra mennta- og barnamála og þingmenn Suðurkjördæmis beita sér fyrir því framtíð náms og námsframboðs á Suðurnesjum verði tryggð.

Eins og áður segir var bókunin lesin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og tóku allir bæjarfulltrúar, ellefu talsins, undir hana.

Nafnalisti

  • Guðný Birna Guðmundsdóttirbæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 408 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.