Hin nýja heims­mynd Trumps, Putins og Jinpings

Guðmundur Einarsson

2025-03-08 14:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hvað eiga Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, Vladimir Putin, forseti Rússlands og Xi Jinping, forseti Kína sameiginlegt?

Þeir eru karlar á áttræðisaldri, einvaldar á heimavelli, ágirnast nágrannalönd og eru pólitískir ofbeldismenn.

Putin og Jinping náðu alræðisvöldum um sama leyti, á árunum 201213, og á hvorugum þeirra er fararsnið. Og þótt Trump hafi komist til valda nokkrum árum síðar, virðist hann ætla bæta það upp með enn einbeittari brotavilja.

heimsmynd

Bandaríkin hafa haft bæði vilja og getu til hafa forgöngu um reglur og stofnanir sem hafa mótað alþjóðasamskipti allt frá lokum seinni heimstyrjaldar, Og þótt á ýmsu hafi gengið þessi 80 ár, og ekki allt með friðsemd, hafa bandamenn þeirra getað reitt sig á stuðning þegar á hólminn var komið.

En í hvaða liði ætlar Trump spila?

Nýlega var viðtal við Sir Alex Younger, fyrrverandi forstjóra bresku leyniþjónustunnar (MI 6) á sjónvarpsttöðinni BBC.

Hann taldi við værum stíga inn í nýtt tímabil þar sem framvinda heimssögunnar muni ekki ráðast af fjölþjóðareglum og -samkomum, heldur ráðabruggi fárra, sterkra leiðtoga. Bandaríkin hafi hvorki vilja getu til ráða ferðinni eins og áður.

Margt er líkt með skyldum

Þremenningarnir, Putin, Jinping og Trump, höfða allir til sögunnar, fornrar frægðar þjóða sinna og heita því gera þær voldugar aftur, great again. Á leið sinni fram á við horfa þeir í baksýnisspegilinn.

Rússneski draumurinn er gamla Sovétveldið. Í kínverska draumnum lifnar tími keisaraættanna, glæstur en týndur og þarf finnast aftur. Og ameríski draumurinn er um almætti fyrstu áratuga eftirstríðsáranna.

Putin telur sig hafa hefðarrétt á gömlum þjóðlendum Stóra Rússlands. Hann er í stríði í Úkraínu, í Hvíta Rússlandi ríkir leppur hans, Alexander Lukashenko og í Moldovu og Georgíu gegnsýra áróðursmenn hans alla umræðu.

Jinping ógnar Taíwan daglega með herjum sínum og og segir innlimun eyjarinnar í Kína óumflýjanlega. Hann á í harðvítugum deilum við Filippseyinga um yfirráð á Suður-Kínahafi og hefur beitt hervaldi í þeim átökum. Og þótt sambúð hans við Víetnam á hafsvæðinu friðsamleg á yfirborðinu, er ljóst hver ræður ferðinni.

Trump hefur blygðunarlaust lýst því yfir hann telji Grænland og Panamaskurðinn á yfirráðasvæði Bandaríkjanna. Hann beitir efnahagslegu ofbeldi gegn nágrönnum sínum í Mexikó sem og Kanada, sem hann telur ætti betur heima sem fylki hjá sér og kallar forsætisráðherrann, Justin Trudeau, iðulega fylkisstjóra.

Með framferði sínu hefur Trump stimplað kröfur Putins og Jinpings eðlilegar og lögmætar. Í hinni nýju heimsmynd þeirra kumpána munu reglur ekki ráða ferð, heldur aflsmunur.

er komið Evrópu standa sig

Trump hefur tekist á tveimur vikum það sem Rússum tókst ekki á 75 árum; eyðileggja Atlantshafsbandalagið. Hann svipti það trúverðugleikanum. Hver treystir varnarbandalagi, sem fellst á rök innrásarliðsins? Hver treystir slökkviliði, sem stýrt er af brennuvargi?

Atlantshafsbandalagið er búið vera, enda verður sjálft hafið ekki til eftir Trump breytir nafninu og og kennir það við Ameríku, eins og hann gerði við Mexikóflóann.

Evrópa mun ekki passa í hina nýju heimsmynd karlanna Trumps, Putins og Jinpings. Henni verður ekki stýrt af einum þorpara á pólitískum sterum. Þjóðir hennar búa yfir biturri reynslu slíkra stjórnarhátta og hafa fundið leiðir til friðsamlegra lausna ágreiningsmála sinna.

Og er hún sameinast um myndarlegt átak til bera loks ábyrgð á eigin vörnum, undir forystu konu.

Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og var yfirmaður skrifstofu aðalframkvæmdastjóra EFTA

Nafnalisti

  • Alexander Lukashenkoforseti
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Justin Trudeauforsætisráðherra
  • Mexikóeinn áfangastaðurinn
  • MI 6bresk leyniþjónusta
  • Sir Alex Younger
  • Taíwaneyja
  • Vladimir Putinforseti Rússlands
  • Xi Jinpingforseti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 615 eindir í 36 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 33 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.