Vilhjálmur gáttaður á launum Heiðu Bjargar – „Ekki í nokkrum takti við það sem annað launafólk hefur fengið í launahækkun á umræddu tímabili“

Kristinn H. Guðnason

2025-03-08 14:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, gerir mikla launahækkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur umfjöllunarefni í færslu á samfélagsmiðlum. Spyr hann hvort þær séu í anda þess sem flokkur sem kenni sig við félagshyggju, réttlæti og jöfnuð boðar.

Er þetta ekki helvíti vel í lagt vera með heildarlaun sem nema tæpum fjórum milljónum á mánuði, segir Vilhjálmur í færslunni.

Vísar hann til fréttar Morgunblaðsins um 170 prósenta hækkun á launum Heiðu fyrir formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Á sama tíma hafa almenn stjórnarlaun hækkað um 60 prósent. Eins og komið hefur fram í fréttum eru laun Heiðu sem borgarstjóri 3,8 milljónir á mánuði.

Bent er á þetta er þreföldun á launum frá árinu 2023. Þau hafi farið úr 285.087 krónum í 868.671 krónur á þessu tveggja ára tímabili. Inni í þessari tölu eru 105.750 krónur vegna aksturs. Heiða Björg hefur verið formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga frá því síðla árs 2022.

Lítil vinnuskylda

Breytingin var samþykkt á síðasta ári en vinnuskyldan var ekki aukin nema lítillega. Það er einum stuttum fjarfundi í mánuði var bætt við.

Þá bendir Vilhjálmur á starfið feli ekki í sér mikla viðveru. Ég skil bara ekki hvernig hægt vera með tæpa milljón fyrir formennsku þar sem fundað er rétt rúmlega einu sinni í mánuði og væntanlega eru allir þessir fundir á hefðbundnum dagvinnutíma, segir Vilhjálmur. Eitt er víst þessi hækkun hjá formanni SÍS er ekki í nokkrum takti við það sem annað launafólk hefur fengið í launahækkun á umræddu tímabili.

Gildi flokksins

Veltir Vilhjálmur því fyrir sér hvort þetta samrýmist gildum Samfylkingarinnar, sem Heiða Björg situr fyrir sem borgarstjóri.

Eru tæpar fjórar milljónir á mánuði í laun og 170% hækkun fyrir formennsku hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga í anda þess sem flokkur borgarstjóra kennir sig við sem er félagshyggja, réttlæti og jöfnuður. Spyr sjá sem ekki veit! segir hann lokum.

Nafnalisti

  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Vilhjálmur Birgissonformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 333 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 95,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,78.