Halla í opinbera heimsókn til Hornafjarðar
Brynjólfur Þór Guðmundsson
2025-03-11 08:01
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Halla Tómasdóttir forseti og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, hefja á morgun tveggja daga opinbera heimsókn í Hornafjörð.
Bæjarstjórn tekur á móti forsetahjónunum og þar kynna þau sér mannlíf og uppbyggingu á svæðinu. Þau ferðast einnig um Suðursveit og Öræfi meðan á heimsókninni stendur.
Dagskráin á fyrri degi heimsóknarinnar er öll á Höfn og snæða forsetahjónin meðal annars hádegisverð með félögum í Félagi eldri Hornfirðinga. Seinni daginn verður farið um dreifbýli sveitarfélagsins og er íbúum á Mýrum og í Suðursveit boðið að snæða hádegisverð með forsetahjónunum á Hótel Jökulsárlóni.
Halla Tómasdottir á Bessastöðum 14. október RÚV/Ragnar Visage
Nafnalisti
- Björn Skúlasonverkstjóri áhaldahúss í þorpinu
- Halla Tómasdottir
- Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi
- Ragnar Visageljósmyndari RÚV
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 98 eindir í 6 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 4 málsgreinar eða 66,7%.
- Margræðnistuðull var 1,44.