Hvernig virka tollar eiginlega?
Oddur Þórðarson
2025-04-03 08:51
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Tollar eru skattur á innflutning frá einu landi til annars.
Tökum dæmi um ál sem flutt er frá Kanada til Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn leggja á 20% toll og því kostar 20% meira fyrir Kanadamenn að flytja álið yfir landamærin. Í augum bandarískra neytenda verður bandarískt ál mun álitlegri kostur og eftirspurn eftir því eykst.
Gott fyrir Bandaríkin en slæmt fyrir Kanada.
En hver borgar brúsann?
Á endanum eru það bandarískir neytendur, kaupmáttur þeirra minnkar af því verð á innfluttum vörum er hærra. Innlend framleiðsla styrkist, en það getur haft slæm áhrif á söluna ef kaupmáttur neytenda er minni.
Bandarískur ríkissjóður græðir einnig, enda renna tollarnir beint í ríkissjóð. Ríkissjóður getur þannig bætt neytendum tjónið, en yfirleitt safnast ekki nóg til þess að gera það að fullu.
Nafnalisti
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 138 eindir í 10 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,61.