Átak hafið til að sporna við félagslegri einangrun

Ritstjórn mbl.is

2025-03-27 11:50

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Átakið Tölum saman hefst formlega í dag, en með því viljum við stuðla vitundarvakningu um félagslega einangrun í samfélaginu, segir Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur og verkefnastjóri verkefnisins.

Hún hefur ásamt eiginmanni sínum Svavari Knúti tónlistarmanni ferðast um allt landið og næsta mánuðinn verða auglýsingar í fjölmiðlum og bæklingar í boði auk þess sem mikið efni er inni á island.is.

Það er félags- og húsnæðisráðuneytið sem setur átakið af stað, segir Líney.

Í sérstakri umræðu um félagslega einangrun á Alþingi í síðustu viku sagði Inga Sæland, félags- og öldrunarmálaráðherra, það vera eitt af sínum hjartans málum vinna gegn þeirri þöglu ógn sem einmanaleikinn er.

Tíunda hvert ungmenni

Tíðni félagslegrar einangrunar hefur aukist í vestrænum samfélögum undanfarin ár og aukin tíðni leiðir til minni hagvaxtar, enda fer fólk minna út og kaupir minna, segir Líney.

Síðustu opinberu tölurnar frá Alþjóðaheilbrigðisstofnunni, WHO, benda til þess tíunda hvert ungmenni búi við félagslega einangrun og fjórðungur eldra fólks, en stofnunin skilgreinir vandann til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis, offitu og aðrar ógnir við almenna heilsu.

Lesa nánar um málið í Morgunblaðinu í dag

Nafnalisti

  • Inga Sælandformaður
  • Líney Úlfarsdóttirsálfræðingur hjá þjónustumiðstöð Laugardals og Hlíða
  • Svavar Knúturtónlistarmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 202 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,50.