Viðskipti

Sjóð­stjórar fá leyfi til að fjár­festa í vopna­fyrir­tækjum

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-01 12:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Danske Bank hefur ákveðið opna á fjárfestingar í evrópskum vopna- og varnarmálafyrirtækjum, sem áður voru útilokuð frá fjárfestingum hjá sjóðum bankans.

Samkvæmt Børsen er um er ræða stórt skref í stefnumótun bankans þar sem um 30 fyrirtæki verða fjarlægð af svokölluðum útilokunarlista Danske Bank á næstu mánuðum.

Þetta þýðir sjóðstjórar bankans, meðal annars innan Danske Invest, munu geta fjárfest í breiðari hópi varnartengdra fyrirtækja en áður.

Í tilkynningu á vef bankans kemur fram þessi breyting bein afleiðing aukinna pólitískra og samfélagslegra áherslna á öryggis- og varnarmál í kjölfar alþjóðlegrar óvissu og stríðsátaka.

Við höfum séð verulega aukna áherslu á nauðsyn sterkara varnarkerfis í Evrópu, og bæði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og dönsk stjórnvöld hafa lagt áherslu á miklar varnarmálafjárfestingar á næstu árum, segir Erik Eliasson, yfirmaður sjálfbærra fjárfestinga hjá Danske Bank, í yfirlýsingu.

Einnig segir Eliasson viðhorf fjárfesta hafi breyst töluvert.

Erik Eliasson, yfirmaður sjálfbærra fjárfestinga hjá Danske Bank.

Við höfum orðið vör við markverða breytingu í almennri afstöðu fjárfestinga viðskiptavina okkar til varnariðnaðarins. Hún hefur orðið mun minna íhaldssöm og endurspeglar breytta heimsmynd.

Stríðið í Úkraínu, auk vaxandi efasemda um áreiðanleika transatlantísks öryggissamstarfs undir forystu NATO, hafa valdið auknum áhuga fjárfesta á vopnaframleiðendum eins og SAAB og Rheinmetall.

Þessi þróun hefur verið svo hröð Danske Bank, ásamt öðrum fjármálastofnunum, hefur jafnvel varað við því of mikil bjartsýni og væntingar kunni leiða til uppsprengds verðs á slíkum hlutabréfum.

Í ljósi þessa hefur Danske Bank tvöfaldað fjárfestingar sínar í varnarmálageiranum á síðustu tveimur árum.

Samkvæmt Thomas Otbo, fjárfestingarstjóra hjá Danske Bank Asset Management, hafa eignir í fyrirtækjum sem framleiða vopn og önnur hergögn aukist verulega.

Á síðustu tveimur árum höfum við meira en tvöfaldað heildareignir okkar í fyrirtækjum með tekjur af vopnum og hergögnum. Varnariðnaðurinn hefur verið sterkt fjárfestingaþema í hlutabréfastrategíum okkar og við bjóðum einnig upp á sérsniðnar lausnir fyrir fagfjárfesta sem hafa áhuga á varnargeiranum.

Með 900 milljarða danskra króna í stýringu

Samanlagt hafa Danske Bank og lífeyrissjóðurinn Danica í dag um 900 milljarða danskra króna í stýringu. Af þeirri upphæð eru um 57 milljarðar danskra króna í vopna- og varnarmálafyrirtækjum. þó sjóðstjórar einnig fjárfesta.

Mun þetta vera í annað sinn á skömmum tíma sem bankinn lætur af ströngum fjárfestingareglum sínum.

Á síðasta ári ákvað Danske Bank aflétta 11 ára gömlu banni gegn fjárfestingum í fyrirtækjum sem taka þátt í þróun og framleiðslu kjarnorkuvopna.

Meðal fyrirtækja sem þar með urðu leyfileg í eignasöfnum bankans voru bandaríska tæknifyrirtækið Honeywell International og breska verkfræðifyrirtækið Rolls-Royce, sem bæði gegna lykilhlutverki í kjarnorkuvopnabúnaði ríkja sinna.

Eliasson sagði þá þessi breyting væri nauðsynleg miðað við nýja stöðu heimsins.

Hin aukna ógn frá Rússlandi hefur knúið okkur til endurmeta nálgun okkar á varnarmálageirann og laga stefnu okkar þeirri samfélagsmynd sem við lifum í. Pólitískt og samfélagslega hefur áhersla á sterkt varnarbandalag í Evrópu og meðal bandamanna okkar aukist verulega, sagði Eliasson í fyrra.

Í lok yfirlýsingar bankans er jafnframt tekið fram vegna regluverks á borð við MAR (Market Abuse Regulation) geti hann ekki upplýst nákvæmlega hvaða fyrirtæki verði fjarlægð af svartalistanum.

Nafnalisti

  • Abuse Regulation
  • Børsendanskur viðskiptamiðill
  • Danicadanskt tryggingafélag
  • Danske Bankdanskur banki
  • Danske Bank Asset Management
  • Danske Invest
  • Erik Eliasson
  • Honeywell International
  • Rheinmetallþýskur vopnaframleiðandi
  • Rolls-Roycebreskur lúxusbílaframleiðandi
  • SAABsænskur bílaframleiðandi
  • Thomas Otbo

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 530 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.