Macron biður franska auðmenn að standa í lappirnar gegn Trump - „Við erum engir kjánar og við munum verja okkur“

Pressan

2025-04-03 19:11

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, vill fyrirtæki innan Evrópusambandsins hætti fjárfesta í Bandaríkjunum til mótmæla tollastríðinu sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hóf í gær.

Það er mikilvægt bíða með framtíðarfjárfestingar, sem og þær fjárfestingar sem voru tilkynntar síðustu vikur, þar til við höfum fengið á hreint hvar við stöndum gagnvart Bandaríkjunum, sagði Macron í dag á fundi sem hann hélt í Elysée-höllinni með hagsmunaaðilum þeirra atvinnugreina sem verða fyrir áhrifum af tollunum sem Bandaríkin hafa lagt á innflutning frá Evrópusambandinu.

Hvaða skilaboð sendum við ef stórir evrópskir leikmenn verja milljörðum evra í bandaríska hagkerfið á sama tíma og Bandaríkin eru í refsiaðgerðum gegn okkur?

Talið er þarna hafi Macron reynt sannfæra franska auðmenn um kyssa ekki vönd Trumps með því reyna undanþágur eða koma sér með öðrum hætti undan 20% toll Bandaríkjanna sem Macron hefur kallað ofsafenginn og illa ígrundaðan. Macron segir enn fremur þessi tollur sýni skýrt það var rétt ákvörðun hjá Frakklandi herða reglur um milliríkjaviðskipti og styrkja viðskiptavarnir.

Við erum engir kjánar og við munum verja okkur.

Macron telur Evrópusambandið ætti beita vopnum sínum gegn Bandaríkjunum, þá einkum nýlegu tóli sem er ætlað berjast gegn viðskiptaþvingunum.

Politico greinir frá

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Emmanuel Macronforseti
  • Forseti FrakklandsEmmanuel Macron
  • Politicobandarískt blað

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 220 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,71.