Sæki samantekt...
Íslenskir utanríkisráðherrar hafa löngum verið naskir við að skrifa undir samninga við Bandaríkjamenn þegar þingið er í fríi — stundum daginn eftir að það var sent heim.
Þetta segir Stefán Pálsson sagnfræðingur.
„Það er hins vegar stórkostlega ósvífið af utanríkisráðherra í starfsstjórn í miðri kosningabaráttu geri svona samkomulag í kyrrþey,“ bætir Stefán við og á þar við Guðlaug Þór Þórðarson árið 2016 eftir að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar sprakk.
Kveikur á Rúv fjallaði um breytingar á varnarsamstarfi Íslendinga við Bandaríkjamenn í gærkvöld þar sem fram komu ýmsar athugasemdir við að Alþingi hafi ekki rætt breytingar sem gerðar voru á varnarsamstarfi á tímum Guðlaugs Þórs sem utanríkisráðherra. Sem dæmi er samkvæmt samningi Guðlaugs Þórs ekki ljóst hvaða landrými innan Íslands ameríski herinn geti nýtt sér undir yfirskini varna. Traust á vörnum Bandaríkjanna fyrir Ísland hefur hrunið undanfarið vegna yfirlýsinga Trump á viðsjárverðum tímum og vaxandi ótta um að herveldi skipti með sér heiminum.
Þá vakti athygli að utanríkisráðherrann sem Stefán kallar stórkostlega ósvífinn hafi ekki verið nafngreindur í fréttaskýringu Rúv.
Sjá nánar hér: Nýjasta viðbótin við varnarsamninginn hvorki rædd né birt-RÚV.is
Nafnalisti
- Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
- Guðlaugur Þór Þórðarsonloftslagsráðherra
- Stefán Pálssonvar gestur Íþróttavikunnar sem kemur út á 433. is, Hringbraut. is og í Sjónvarp Símans alla föstudaga
- Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 183 eindir í 8 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 87,5%.
- Margræðnistuðull var 1,62.