Segir Pólland þurfa kjarnorkuvopn og allir menn fá herþjálfun
Samúel Karl Ólason
2025-03-07 15:29
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Pólverja þurfa að eignast kjarnorkuvopn, auk annarra háþróaðra vopna. Þá stendur til að fá pólska menn til að fara í gegnum herþjálfun, til að auka viðbúnað ríkisins ef til stríðs kemur í framtíðinni.
Pólverjar ætla að segja sig frá sáttmálum sem meina notkun jarðsprengja og klasasprengja.
Þetta er meðal þess sem Tusk sagði í ræðu í pólska þinginu í dag. hann sagði að ef Rússar nái fullum tökum og innlimi hluta Úkraínu muni staða varnarmála í Póllandi verða mun flóknari.
Vegna þessa væri verið að undirbúa umfangsmikla herþjálfun fyrir alla fullorðna pólska menn, svo Pólverjar eigi varalið sem hægt væri að kalla til herþjónustu með tiltölulega litlum tíma.
Meðal annars vísaði Tusk til breytts viðhorfs yfirvalda í Bandaríkjunum til Rússlands og innrásar Rússa í Úkraínu. Er það eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur stöðvað hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og skipað hernum að hætta að deila upplýsingum með úkraínskum hermönnum.
Trump hefur einnig ítrekað endurómað áróður sem á rætur í Kreml og neitað að segja að Rússar beri ábyrgð á innrás þeirra í Úkraínu. Þvert á móti hefur hann gefið í skyn að Úkraínumenn beri ábyrgð á innrásinni.
Sjá einnig: Talsmaður Pútíns hrósar Rubio fyrir ummæli um leppastríð
Í gærkvöldi gaf Trump í skyn að hann myndi ekki aðstoða önnur ríki Atlantshafsbandalagsins ef gerð yrði árás á þau og dró í efa að önnur ríki NATO myndu koma Bandaríkjunum til aðstoðar. Það er þrátt fyrir að fimmta grein stofnunarsamnings NATO hafi aðeins einu sinni verið virkjuð, eftir árásina á Tvíburaturnana í New York árið 2001 og að öll aðildarríki hafi komið Bandaríkjunum til aðstoðar.
Trump on NATO: If the United States was in trouble and we called them and said we've got a problem. You think they're going to come and protect us? I’m not so sure pic.twitter.com/6 FxwLQtdiU]]-Acyn (@Acyn) March 6, 2025
Staða Póllands verri tapi Úkraínumenn
Tusk sagði að ef Úkraína yrði áfram fullvelda lýðræðisþjóð í framtíðinni, yrði Pólland og öll Evrópa öruggari fyrir vikið. Annars myndi staðan versna.
„Ef Úkraína tapar stríðinu, eða samþykkir skilmála eða uppgjöf sem veikir fullveldi þeirra og gerir Pútín [Forseta Rússlands] auðveldara að ná tökum á Úkraínu, þá er staða Póllands, án nokkurs efa og við erum öll sammála um þetta, í varnarmálum orðin mun erfiðari,“ sagði Tusk.
Hann nefndi einnig í ræðunni að Pólverjar, sem hafa þegar aukið fjárútlát til varnarmála til muna á undanförnum árum, þyrftu að verða sér út um háþróuð vopn. Bæði hefðbundin og kjarnorkuvopn.
„Þetta er alvarlegt kapphlaup. Kapphlaup til öryggis, ekki stríðs.“
💬 PM @DonaldTusk in Parliament: Poland must pursue the most advanced capabilities, including nuclear and modern unconventional weapons. This is a serious race-a race for security, not for war.]] -Chancellery of the Prime Minister of Poland (@PremierRP_en) March 7, 2025
Stefnt á mikla uppbyggingu í Evrópu
Ummæli og aðgerðir Trumps og embættismanna hans á undanförnum vikum hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu um að heimsálfan geti ekki treyst á Bandaríkjamenn. Þetta hefur meðal annars opnað á umræðu um fælingarmátt Evrópu þegar kemur að kjarnorkuvopnum. Eins og staðan er núna eiga eingöngu Bretar og Frakkar kjarnorkuvopn í Evrópu, að Rússum undanskildum.
Fyrrnefndu ríkin tvö eiga þó einungis nokkur hundruð slík vopn og Rússar eiga að minnsta kosti fimm þúsund.
Sjá einnig: Íhugar að bjóða fram fælingarmátt kjarnorkuvopnabúrsins
Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins samþykktu í gær verulega aukningu fjárútláta til varnarmála og umfangsmiklar hernaðaruppbyggingu, samhliða endurreisn hergagnaiðnaðar Evrópu. Þá sagði Tusk að Evrópa væri í vopnakapphlaupi við Rússa og að Evrópa myndi vinna í því kapphlaupi.
„Evrópa verður að vera tilbúið í þetta vopnakapplaup og Rússland mun tapa því eins og Sovétríkin gerðu fyrir fjörutíu árum.“
Nafnalisti
- Chancellery of the Prime Minister of Poland
- Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
- Donald Tuskforseti leiðtogaráðs ESB og fyrrverandi forsætisráðherra Póllands
- If the United States
- Marchaðstoðarmaður Rangnick
- Parliamentband
- PMPóstmarkaðurinn ehf.
- Pútínforseti Rússlands
- PútínsRússlandsforseti
- Rubiosá eini af frambjóðendum repúblikanaflokksins sem fór
- Youtímarit
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 659 eindir í 36 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 29 málsgreinar eða 80,6%.
- Margræðnistuðull var 1,56.