Viðskipti

Ásthildur Lóa tapaði vegna fyrningar

Ritstjórn DV

2025-03-12 15:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra og eiginmaður hennar töpuðu máli sínu gegn íslenska ríkinu en dómur var kveðinn upp fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Er í niðurstöðu dómsins helsta ástæðan sögð kröfur hjónanna á hendur ríkinu séu fyrndar.

Fóru hjónin fram á skaðabætur á grundvelli þess sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi staðið ranglega nauðungarsölu á fasteign þeirra í Garðabæ og ekki tekið tillit til fyrningar vaxta. Arion banki fór fram á nauðungarsöluna árið 2016 og átti bankinn hæsta boðið þegar salan fór fram árið eftir. Töldu hjónin ekki hefði verið tekið tillit til þeirra vaxta sem miða hafi átt við þegar salan fór fram.

Héraðsdómur og Hæstiréttur staðfestu lögmæti sölunnar sama ár og hún fór fram.

Hjónin keyrðu úthlutunargerð sýslumanns vegna sölunnar 2018. Þau unnu í héraði en Landsréttur sneri dómnum við og Hæstiréttur neitaði taka málið fyrir.

Í dómi Héraðsdóms eru raktar ítarlega deilur hjónanna og Arion banka vegna sölunnar og tilheyrandi málarekstur fyrir dómstólum en 2019 keyptu hjónin eignina aftur af bankanum en liður í sölunni var samkomulag um öllum málarekstri milli aðila yrði hætt.

Nauðungarsalan

Árið 2023 sneru hjónin sér hins vegar ríkinu og vildu meina vegna fyrningar vaxta hafi þau átt í sinn hlut 10,6 milljónir króna af söluverði fasteignarinnar við nauðungarsöluna en Arion banki greiddi þá alls 60 milljónir fyrir eignina. Þar að auki hafi nauðungarsalan ekki farið fram með lögmætum hætti.

Kröfðust hjónin þessara 10,6 milljóna í bætur auk dráttarvaxta.

Ríkið hélt því fram rétt hafi verið staðið sölunni að öllu leyti. Vísaði það einnig til þess málið væri fyrnt. Skaðabætur fyrnist á fjórum árum frá þeim degi sem tjónþoli hafi fengið nauðsynlegar upplýsingar um tjónið. Hjónin hafi fengið allar nauðsynlegar upplýsingar um söluna árið 2018.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir málatilbúnaður hjónanna að nokkru leyti óglöggur. Til mynda skorti nokkuð á reifun þess hvaða fjárhæðir hafi gjaldfallið á hverjum gjalddaga fyrir sig í nóvember 2012 og hvaða áhrif endurútreikningur lána hjónanna kunni hafa haft á fyrningu þeirra. Mögulegt ekki hafi verið nægilega ljóst vextirnir væru fyrndir þegar salan var til meðferðar hjá sýslumanni.

Mál hjónanna hafi hins vegar verið höfðað í nóvember 2023 en það er niðurstaða dómsins upplýsingar fyrir hjónin um hið meinta tjón hafi legið fyrir í seinasta lagi í nóvember 2018 með synjun Hæstaréttar við beiðni um taka mál þeirra fyrir. Ætla megi á þeim tímapunkti hafi frumvarp sýslumanns úthlutun söluverðs eignarinnar á nauðungarsölunni legið skýrt fyrir og allar nauðsynlegar upplýsingar þar með. Krafa hjónanna hafi því verið fyrnd ári áður en málið var höfðað.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 443 eindir í 23 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 95,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.