Stjórnmál

Hveiti­brauðs­dögunum lokið: Ríkis­stjórnin pólitískt stór­tækari en von var á

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir

2025-03-31 12:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur verið við störf í hundrað daga. Almannatengill segir ríkisstjórnina hafa verið pólitískt stórtækari en hann átti von á og forystukonurnar hafa staðið sig vel.

Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins tók við störfum 23. desember síðastliðinnþremur vikum eftir þingkosningar fóru fram.

Heilt yfir hefur þetta gengið nokkuð vel. Það eru svona helst mál, sem eru ekki beint pólitísk, sem hafa valdið því stoðirnar undir ríkisstjórninni eru veikari en í upphafi, segir Andrés Jónsson almannatengill.

Tærir stoðirnar

Sérstaklega hefur gustað um Flokk fólksins en þónokkur hneykslismál hafa komið upp hjá flokknum á kjörtímabilinu. þar nefna styrkjamálið, deilur flokksins við Morgunblaðið og afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.

Allt svona tærir aðeins stoðirnar og hvert mál er eins og smá ryðblettur á samstarfsgrundvöllinn hjá ríkisstjórninni.

Erfitt fyrir stjórnarandstöðuna gagnrýna hingað til

Hann segir bæði mega skrifa þetta á reynsluleysi flokksins en einnig það þekkt minni flokkar í ríkisstjórnum taki á sig mesta gagnrýni. Ríkisstjórnin hefur boðað ýmislegt á þessum stutta tíma-breytingar á veiðigjöldum, afturköllun á búvörulögum, dregið hefur verið úr stuðningi við Grindvíkinga, hagræðingar í ríkisrekstri verið boðaðar svo fátt eitt nefnt.

Þær eru stórtækari pólitískt en ég átti von á og hefur gengið betur koma sínum málum áfram. Það eru þessir hveitibrauðsdagar, þessir fyrstu 100 dagar, og þá er erfitt fyrir stjórnarandstöðuna gagnrýna málin bæði vegna þess þau eru ekki komin fram, fresturinn rennur út á morgun koma málum á þingmálaskrá, og nákvæmlega hvernig málin líta út er fyrst koma fram núna á síðustu dögum, segir Andrés.

Og það er líka vegna þess þau mál sem eru í gangi í samfélaginu verða rakin til fyrri stjórnvalda meira en þeirra sem eru nýtekin við. Núna eftir þessum hveitibrauðsdögum lýkur færist ábyrgðin yfir á núverandi stjórnvöld.

Nýir ráðherrar komi skemmtilega á óvart

Ríkisstjórnin mælist með 67 prósenta stuðning en byrjaði með um 70 prósent. Andrés segir margir í nýrri ríkisstjórn hafi komið honum skemmtilega á óvart.

Mér finnst forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa staðið sig nokkuð vel, valkyrjurnar þrjár, þær eru allar frekar sterkar í sínum hlutverkum. Jafnvel þó Inga hafi þurft kljást við fleiri vandamál en hinar tvær, segir hann.

Svo finnst mér nokkrir ráðherrar vera koma vel út, til dæmis dómsmálaráðherra. Fjármálaráðherrann er koma vel á óvart, því hann er töluvert óreyndur sem stjórnmálamaður, er háskólamaður, mér finnst hann enn sem komið er koma vel út. Sömuleiðis umhverfis- og orkumálaráðherrann. Svo eru einhverjir ráðherrar sem eru minna áberandi eins og heilbrigðisráðherrann, háskóla- og nýsköpunarráðherrann, samgönguráðherrann. En heilt yfir er þessi ríkisstjórn enn með talsvert mikið pólitískt kapítal.

Stjórnarandstaðan ekki náð vopnum sínum

Stjórnarandstaðan þurfi spýta í lófana.

Stjórnarandstaðan hefur ekkert endilega náð sér vel á strik. Það er samt jákvætt fyrir nýjan formann Sjálfstæðisflokksins hann fékk þokkalega mælingu í síðustu könnun Maskínu. Þó það væri ekki mikið upp á við er það mikilvægt fyrir þann flokk og fyrir stjórnarandstöðuna Sjálfstæðisflokkurinn nái vopnum sínum, segir Andrés.

En Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa ekki mikið látið sér kveða og Framsóknarflokkurinn virðist enn vera margar spurningar um hvað verði um þeirra forystumál. En Sigmundur Davíð hefur haldið sig frekar til hlés og nýir þingmenn Miðflokksins.

Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa boðað til fundar klukkan eitt þar sem farið verður yfir hveitibrauðsdagana.

Nafnalisti

  • Andrés Jónssonalmannatengill hjá Góðum samskiptum
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Ingatvíburi
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Sigmundur Davíðformaður Miðflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 607 eindir í 34 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 30 málsgreinar eða 88,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.