Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir

2025-03-29 16:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fleiri en sextán hundruð manns eru látnir eftir stóra jarðskjálfta í Mjanmar. Þúsundir eru slasaðir og tuga enn saknað.

Jarðskjálftinn skók Mjanmar um hádegi í gær og mældist stærð 7,7. Þar á eftir skók annar skjálfti upp á 6,4 og fleiri minni skjálftar.

3048 eru manns slasaðir eftir skjálftann og 139 enn saknað. Í Taílandi létust níu og í höfuðborginni Bangkok hrundi háhýsi í byggingu niður vegna skjálftans. Þar er enn 47 saknað.

Mikil eyðilegging er eftir skjálftan en margar byggingar hrundu, vegir eyðilögðust og rafmagn sló út.

Enn er verið leita í rústunum eftir fólki og kona nafni Phyu Lay Kahing fannst í rústum íbúðarhússins síns þrjátíu klukkustundum eftir skjálftann samkvæmt umfjöllun The Guardian.

Fréttamenn á svæðinu greina frá fólk býr sig undir sofa úti á götu í stað þess hætta sér inn í hálfhrunin heimili sín.

Kínverjar hafa sent rúmlega hundrað manns, þar á meðal sérfræðinga, til aðstoða í björgunaraðgerðunum og ýmiss konar búnað. Þeir lofa einnig tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna í neyðaraðstoð. Yfirvöld í Suður-Kóreu hafa einnig lofað fjármagni til aðstoðar íbúum Mjanmar ásamt Sameinuðu Þjóðunum.

Nafnalisti

  • Phyu Lay Kahing
  • Suður-Kóreunágrannaríki

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 195 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 84,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.