Veiði

Efast ekki um 48 daga til strandveiða

Ritstjórn mbl.is

2025-03-27 09:20

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Það styttist óðum í strandveiðar hefjist, en upphafsdagur verður líklega 5. maí. Ríkisstjórnin hefur heitið því tryggja öllum strandveiðibátum 48 veiðidaga, það er að segja 12 veiðidaga í hverjum mánuði maí til og með ágúst. Til þess er þörf á meiri veiðiheimildum en veiðunum hefur verið ráðstafað undanfarin ár og hefur hingað til ekki verið sýnt fram á hvernig staðið verður við þessi fyrirheit, en Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur greint frá því lagafrumvarp um strandveiðar verði ekki afgreitt í tæka tíð til breyta tilhögun veiða sumarsins.

Þau hafa sagt það verði 48 dagar í sumar. Ég hef ekki séð nákvæmlega hvernig það verður gert, en ég hef enga ástæðu til annars en trúa þau standi við það, segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, inntur álits á því hvernig hann sjái fyrir sér ríkisstjórnin geti staðið við loforðið.

Það er líka klókt hafa umsóknarfrest svo þau geti haft vaðið fyrir neðan sig, segir hann og vísar til þess reglugerðardrög sem birt voru fyrr í mánuðinum kveða á um frestur til sækja um strandveiðileyfi verði 15. apríl ár hvert.

Við stungum upp á því við ráðuneytið skella september inn í strandveiðivertíðina. Það mun hafa þau áhrif jafna hlut C-svæðisinsþað hefur hallað mest á þetta svæði á Norðausturlandi og Austurlandi. Það myndi hafa þau áhrif hluti aflans kæmi inn á nýju fiskveiðiári og þannig væri hægt kaupa sér ákveðinn tíma til fara ekki fram úr heimildum og ég held fólk fyrir austan væri miklu frekar til í veiða í september en í maí, segir Kjartan.

Nánar lesa í Morgunblaðinu í dag.

Nafnalisti

  • Hanna KatrínFriðriksson
  • Kjartan Páll Sveinssonformaður Strandveiðifélags Íslands

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 295 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 90,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.