Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun

Samúel Karl Ólason

2025-03-27 19:35

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa sent Úkraínumönnum drög nýju samkomulagi sem myndu í raun veita Bandaríkjamönnum stjórn á auðlindum Úkraínu. Drögin innihalda þó ekki nokkurs konar öryggistryggingar.

Blaðamenn Financial Times hafa komið höndum yfir drögin en í grein miðilsins (áskriftarvefur) segir um mikla stigmögnun á fyrri kröfum Bandaríkjamanna ræða.

Heimildarmenn miðilsins meðal ráðamanna í Úkraínu hafa meðal annars lýst drögunum sem ósanngjörnum og tilraun til ráns. Þeir segja samkomulag sem byggi á þessum drögum myndi grafa undan fullveldi Úkraínu og gera ríkið háð Bandaríkjunum.

Samkvæmt nýju kröfunum myndu allar tekjur Úkraínu af námu-, olíu og gasvinnslu og allar tekjur af innviðum eins og höfnum, olíu- og gasleiðslum og lestum fara í sjóð sem stýrt yrði frá Bandaríkjunum og hann yrði notaður til deila tekjunum með ríkjunum tveimur.

Tekjunum yrði breytt í erlenda mynt og fluttar úr landi. Tefjist það flytja tekjurnar í sjóðinn gætu Úkraínumenn, samkvæmt drögunum, þurft greiða Bandaríkjamönnum skaðabætur.

Bandaríkin myndu greitt úr sjóðnum á undan Úkraínu og myndi sjóðurinn þar að auki hafa yfirstjórn á innviðaverkefnum, fjárfestingum og auðlindasölu.

Sjóðinum yrði stýrt af fimm manna nefnd og myndu Bandaríkjamenn skipa þrjá þeirra og því hafa neitunarvald yfir öllum ákvörðunum.

Í drögunum er einnig klausa um það bandarískir embættismenn ættu aðgang öllum opinberum gögnum í Úkraínu og sömuleiðis aðgang fjármálagögnum einkarekinna fyrirtækja þar í landi.

Sagði Trump-liða sífellt breyta kröfum sínum

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er staddur í Frakklandi en þangað fór hann á fund fjöldal þjóðarleiðtoga og erindreka. Hann ræddi við blaðamenn í dag og sagði Bandaríkjamenn sífellt vera breyta kröfum þeirra í garð Úkraínu. Hann tók þó fram hann vildi ekki hann væri talinn mótfallin því semja við Bandaríkjamenn.

Þá sagði Selenskí hann væri ekki á leið aftur til Washington DC.

Frá því Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna, hefur hann lagt mikla áherslu á Úkraínumenn greiði Bandaríkjunum á einhvern hátt fyrir þá hernaðaraðstoð sem ríkið hefur fengið.

Sjá einnig: Neitaði skrifa undir plagg Trumps um sjaldgæfa málma

Trump hefur einnig ítrekað talað máli Rússa og Vladimírs Pútin, forseta Rússlands, og hafa Bandaríkjamenn heilt yfir beitt Úkraínumenn miklum þrýstingi.

Á sama tíma hafa Trump og erindrekar hans talað fyrir því fella niður refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum, í skiptum fyrir lítið sem ekki neitt.

Sjá einnig: Segjast ræða um opna aftur Nord Stream-gasleiðslurnar

Selenskí fór í byrjun mars til Bandaríkjanna með því markmiði skrifa undir samkomulag við Trump um afnot Bandaríkjamanna af auðlindum í Úkraínu. fundur endaði með hávaðarifrildi og fór Selenskí frá Bandaríkjunum án þess skrifa undir.

Evrópa segir nei

Síðan þá hafði samband ríkjanna skánað töluvert og höfðu Úkraínumenn til mynda samþykkt tillögu Trump almennu vopnahléi yfir þrjátíu daga. Pútín hafnaði því að endingu en gerði svo seinna meir samkomulag við Bandaríkjamenn um vopnahlé á Svartahafi, í skiptum fyrir niðurfellingu refsiaðgerða og aðgang mörkuðum heimsins fyrir landbúnaðarvörur.

Rússar krefjast þess einnig aftur aðgang SWIFT-greiðslukerfinu, sem notað er til miðla greiðslum milli alþjóðlegra banka. Flestum rússneskum bönkum var meinaður aðgangur kerfinu eftir innrásina í febrúar 2022.

Sjá einnig: Vilja aðstoð við útflutning og losna við þvinganir áður en þeir hætta árásum

Þetta takmarkaða vopnahlé á Svartahafi snýr einnig árásum á orkuinnviði í Úkraínu og í Rússlandi og virðist sem það hafi haldið síðustu daga.

Á fundinum í Frakklandi í dag ákváðu leiðtogar um þrjátíu ríkja fella ekki niður refsiaðgerðir gegn Rússum, fyrr en rússneskir hermenn hörfuðu frá Úkraínu. Hvaða áhrif það mun hafa á vopnahléið er ekki ljóst.

Ætla styrkja her Úkraínu

Eftir fundinn í París í dag hétu leiðtogarnir sem sóttu hann því styrkja her Úkraínu en Keir Stamer, forsætisráðherra Bretlands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, reyndu ýta undir stuðning fyrir því senda hermenn til Úkraínu, þegar búið er skrifa undir friðarsamkomulag, þar sem þeir yrði ætlað tryggja friðinn.

Eins og fram kemur í grein Reuters hefur það gengið erfiðlega og er það að miklu leyti vegna þess vopnahlé þykir fjarlægur draumur. Framtíðin byggir stórum hluta á ákvörðunum Rússa og hvaða leyti Bandaríkjamenn eru tilbúnir til styðja meinta bandamenn sína.

Macron tilkynnti í dag aukna hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum fyrir um tvo milljarða evra.

Aðgerðir og orðræða Trumps hefur leitt til mikilla áhyggja í Evrópu um Bandaríkjamönnum ekki lengur treystandi til koma ríkjum Evrópu til aðstoðar. Ráðamenn víðsvegar um Evrópu hafa á undanförnum vikum tilkynnt umfangsmikla hernaðaruppbyggingu en hún mun taka tíma og í millitíðinni munu Evrópumenn þurfa reiða sig að miklu leyti á Bandaríkin.

Í Evrópu hefur sérstök áhersla verið lögð á draga úr kaupum á vopnum og hergögnum frá Bandaríkjunum.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Emmanuel Macronforseti
  • Financial Timesbreskt dagblað
  • Keir Stamer
  • Nordveitingastaður
  • Pútínforseti Rússlands
  • Vladimírs Pútin
  • Vólódímír Selenskíforseti Úkraínu
  • Washington DCbandarísk höfuðborg

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 827 eindir í 40 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 34 málsgreinar eða 85,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.