Stöðvuðu smygl á tuttugu þúsund Oxycontin-töflum

Eiður Þór Árnason

2025-04-02 19:54

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Tollverðir á Keflavíkurflugvelli lögðu hald á um tuttugu þúsund lyfseðilsskyldar töflur í síðustu viku sem reynt var smygla til landsins.

RÚV greinir frá þessu og hefur samkvæmt heimildum um ræða Oxycontin-töflur í hæsta fáanlega styrk. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, vildi ekki tjá sig efnislega um málið en gaf upp fjórtán einstaklingar væru í gæsluvarðhaldi í tengslum við aðskilin mál sem öll varði innflutning fíkniefna. Fangaklefar lögreglunnar á Suðurnesjum væru meira og minna alltaf fullir vegna mikils fíkniefnainnflutnings í gegnum flugvöllinn.

Aukinn vandi meðal ungs fólks

Oxycontin er tegund ávanabindandi og einkar hættulegra ópíóða sem hafa valdið miklum usla víða um heim. Af 56 lyfjatengdum andlátum á Íslandi árið 2023 voru 34 vegna ópíóíða-eitrana, samkvæmt tölfræði Landlæknisembættisins. Misnotkun ópíóíðalyfja er vaxandi vandamál á heimsvísu og eru vísbendingar um aukinn ópíóðavanda hjá ungu fólki á Íslandi.

Ópíóðar eru sérstaklega hættulegir vegna þess ávanabinding er mikil og þekkt einstaklingar þrói hratt með sér þol og fíkn í lyfin. Leiðir það til þess notaðir eru sífellt stærri og lífshættulegri skammtar, líkt og fram kemur í samantekt heilbrigðisráðuneytisins.

Hættulegasta aukaverkun slíkra lyfja er öndunarbæling en með notkun stórra skammta eykst áhætta á ofskömmtun og öndunarstoppi.

Nafnalisti

  • Oxycontinávana- og fíknilyfinu
  • Úlfar Lúðvíkssonlögreglustjóri

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 207 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.