Vitfirringin kalli á skjótt endurmat varna Íslands

Björn Þorláksson

2025-04-01 10:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor emeritus segir Íslendingar þurfi hugsa sín varnarmál upp á nýtt með hraði. Hann lýsir í færslu á facebook þeim breytingum og vaxandi ógnum sem hafi raungerst á skömmum tíma síðan Trump tók við forsetaembættinu í BNA í annað skipti og hefur síðan beitt fjölda tilskipana.

Pol Pot tók fólk með gleraugu og sendi það í útrýmingarbúðir í Kambódíu. Honum fundust gleraugun tortryggileg, segir Þorvaldur. Donald Trump tekur fólk með húðflúr og sendir það í pyndingarbúðir í El Salvador í trássi við úrskurð dómara. Hann telur húðflúrið vitna um aðild glæpasamtökum, en enginn þeirra sem sendur var til El Salvador hafði verið fundinn sekur um glæp.

Og ekki er allt upptalið, því eins og Þorvaldur segir: Stúdentar hverfa sporlaust inn í ómerkta bíla lögreglunnar. Prófessorar, einkum sérfræðingar um sögu fasismans, flýja land. Vitfirringin breiðist út.

Niðurstaða hans: Íslendingar þurfa hugsa varnarmál sín upp á nýtt, með hraði.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • El SalvadorMið-Ameríkuríkinu
  • Pol Potleiðtogi Rauðu khmeranna í Kambódíu
  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna
  • Þorvaldur Gylfasonhagfræðiprófessor við Háskóla Íslands

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 174 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 90,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.