Magnús og Gunnar nýir meðeigendur Landslaga

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-01 09:41

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Lögmennirnir Magnús Ingvar Magnússon og Gunnar Atli Gunnarsson hafa gengið til liðs við eigendahóp Landslaga.

Magnús útskrifaðist frá lagadeild Háskólans í Reykjavík árið 2017 og hlaut réttindi til starfa sem héraðsdómslögmaður sama ár. Hann hóf störf sem lögmaður á Landslögum árið 2018 og hlaut málflutningsréttindi fyrir Landsrétti á árinu 2024.

Hann sérhæfir sig á sviði verktaka- og útboðsréttar, gjaldþrotaskipta og málflutnings. Þá hefur Magnús einnig umsjón með kennslu í verktakarétti við Háskólann í Reykjavík.

Gunnar Atli lauk meistaraprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2015. Hann öðlaðist réttindi til flytja mál fyrir héraðsdómi 2017 og útskrifaðist með LL.M gráðu frá University of California, Berkeley, í desember 2021.

Hann hefur sinnt kennslu við lagadeild Háskóla Íslands frá árinu 2021 og var skipaður aðjúnkt við deildina árið 2024. Gunnar Atli starfaði áður sem aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands.

Nafnalisti

  • Berkeleyháskóli
  • Gunnar Atli Gunnarssonaðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Hæstarétt Íslandssjálfa
  • Magnús Ingvar Magnússon
  • University ofeldfjalla-jarðskjálftafræðihópi Cambridge-háskóla

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 136 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 77,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.