Stjórnmál

Jónas Már tætir í sig þá sem hæðast að Guðmundi Inga eftir ávarpið umtalaða – „Ólýðræðislegur stéttahroki af verstu sort“

Kristinn H. Guðnason

2025-03-26 09:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Jónas Már Torfason, lögmaður og fyrrverandi blaðamaður, segir þá sem gera sér mat úr ávarpi Guðmundar Inga Kristinssonar á brotakenndri ensku sýna af sér stéttahroka af verstu sort. Það mannlega og ófullkomna ekki veikleiki heldur styrkleiki.

Einhverjir virðast ætla gera sér mat úr ávarpi nýs mennta- og barnamálaráðherra, Guðmundar Inga Kristinssonar, sem hann flutti á leiðtogafundi í menntamálum í morgun, segir Jónas Már í færslu á samfélgasmiðlum sem hefur vakið mikla athygli. Ræðan er óneitanlega á eilítið brotakenndri ensku og virðist einhverjum þykja það merki um hann ekki embættinu vaxinn. Slíkt er auðvitað ólýðræðislegur stéttahroki af verstu sort.

Er hann vísa til ávarps Guðmundar Inga Kristinssonar, nýs mennta- og barnamálaráðherra, á leiðtogafundi í Silfurbergi í Hörpu í gærmorgun. En þar var rætt um áskoranir í skólakerfinu.

Snýst um pólitíska forystu

Jónas Már segir það eigi ekki vera krafa vera langskólagenginn til þess gegna pólitískum embættum. Ráðherraembættið snúist um pólitíska forystu og ráðherrum til aðstoðar við framkvæmd pólitískrar sýnar sinnar er lítill her af langskólagengnum sérfræðingum sem Jónas Már segist ekki efast um tali allir lýtalausa ensku.

Ákveðnir hópar samfélagsins virðast hafa vanist völdum og þess vegna líka vanist ákveðinni staðalímynd af því hvernig fólk sem fer með völd lítur út, talar og hegðar sér, segir hann. Þessir hópar, fyrrum valdhafar sem þola ekki hafa misst valdasprotann frá sér, hafa sótt Flokki fólksins að undanförnu af hömlulausri heift einmitt því flokkurinn og fulltrúar hans passa ekki þeirri staðalímynd.

Gagnleg og mannleg reynsla styrkur

Vísar hann til þess í æviágripum Guðmundar Inga sem hafa verið reifuð komi fram hann hafi starfað sem smiður, lögreglumaður og afgreiðslumaður í verslun. Það er áður en hann varð öryrki eftir bílslys þegar við tók áralöng barátta við kerfið.

Er það ekki gagnlegri og mannlegri reynsla en hjá mörgum öðrum sem hafa setið í ríkisstjórn? spyr Jónas Már. Og er það kannski ekki bara fegurðin við lýðræðið maður með þennan bakgrunn geti náð kjöri og einmitt verið fulltrúi þeirra sem hafa ekki farið með völd; fulltrúi fólks sem hefur á einhvern hátt fallið milli skips og bryggju í kerfinueinmitt það fólk sem hinn hefðbundni ráðherra á erfitt með sjá og skilja og einmitt það fólk sem helst þarf hjálpa til bæta kerfið. Þannig það vel vera Guðmundur tali ekki fullkomna ensku og aðrir ráðherrar Flokk fólksins séu ekki með þann bakgrunn sem fólk hefur vanist af ráðherrum. En það mannlega og ófullkomna er ekki veikleiki þeirra heldur styrkleiki, segir hann lokum.

Nafnalisti

  • Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
  • Harpatónlistar og ráðstefnuhús
  • Jónas Már Torfasonsonur Ölmu Möller landlæknis

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 456 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 73,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.