Sæki samantekt...
Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga í tengslum við kvikuhlaupið sem varð 1. apríl hefur haldist stöðug í nótt. Engin virkni hefur sést á gossprungunni sem opnaðist norðan Grindavíkur í fyrradag en enn má greina glóð í nýja hrauninu og rýkur upp úr því á mörgum stöðum.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að enn séu að mælast um 80–120 skjálftar á hverri klukkustund í kvikuganginum og eru þeir orðnir rúmlega 600 talsins frá miðnætti.
Skjálftarnir dreifast nokkuð jafnt frá Stóra Skógfelli í SV hluta gangsins og norður fyrir Keili á NA hluta gangsins. Dýpi skjálftanna er áfram stöðugt á um 4 — 6 km dýpi að jafnaði.
„Stærð skjálftanna frá miðnætti er undir 2 að stærð, ekki hefur mælst skjálfti yfir 3 að stærð síðan kl. 14:20 í gær, 2. apríl, en sá skjálfti var gikkskjálfti rétt NA við Eldey. Gikkskjálftum við Reykjanestá og Eldey hefur farið fækkandi og tæplega 30 skjálftar mælst frá miðnætti,“ segir í tilkynningu Veðurstofunnar.
Nafnalisti
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 163 eindir í 7 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 85,7%.
- Margræðnistuðull var 1,82.