Stjórnmál

Áslaug Arna segir Sjálfstæðisflokkinn vera rétta valkostinn fyrir fátækt fólk

Eyjan

2024-09-06 15:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra færir í grein í Morgunblaðinu, sem hún endurbirtir í færslu á Facebook-síðu sinni, rök fyrir því flokkur hennar, Sjálfstæðisflokkurinn, besti valkosturinn fyrir fátækt fólk á Íslandi.

Hún vísar í upphafi í grein eftir þjóðþekkta konu sem starfaði í Alþýðuflokknum. Áslaug nafngreinir ekki konuna en segir hana hafa skrifað í greininni um hvernig Alþýðuflokkurinn hefði barist fyrir kosningarétti fátækra sem þegið hefðu félagslegan stuðning en fram á fyrri hluta 20. aldar var fólk í slíkri stöðu svipt kosningaréttinum. Áslaug Arna segir hina ónefndu kona hafa lýst furðu sinni yfir því hvaða flokki þessi þjóðfélagshópur greiddi atkvæði sitt þegar loksins tókst afnema lög sem kváðu á um þau sem þáðu framfærslustyrk yrðu svipt kosningaréttinum:

Árið 1934 fékk fátækasta fólkið á Íslandi loks ótakmarkaðan kosningarétt. Þegar kjördagur rann upp og fólkið í Pólunum í Reykjavík klæddi sig í sparifötin fór það í kjörklefann til kjósa. Fólkið kaus, í stórum stíl, Sjálfstæðisflokkinn. Forystukonan gat með engu móti skilið af hverju fólkið sem Alþýðuflokkurinn barðist fyrir fengi kosningarétt hefði ekki launað þeim greiðann og kosið til vinstri.

Pólarnir í Reykjavík voru hrörlegt íbúðarhúsnæði sem byggt var syðst við Laufásveg og sérstaklega ætlað bágstöddum fjölskyldum. Pólarnir voru upphaflega byggðir í mikilli húsnæðiseklu í fyrri heimstyrjöldinni og áttu vera til bráðabirgða en voru stækkaðir og stóðu á endanum í tæpa hálfa öld.

Skynsamt fólk

Áslaug Arna segir hina fátæku íbúa Pólanna hafa með skynsemina leiðarljósi kosið Sjálfstæðisflokkinn í stórum stíl:

Af hverju rifjaði ég upp þessa grein? Veruleikinn var á þessum tíma áttaði þetta skynsama fólk sig á því flokkurinn sem barðist fyrir jöfnum tækifærum, stétt með stétt og blómlegu atvinnulífi var Sjálfstæðisflokkurinn. Flokkurinn sem vildi hjálpa fólki út úr fátækt. Við viljum hjálpa fólki til hjálpa sér sjálft. En við vitum líka það verður alltaf einhver hópur sem þarf áframhaldandi stuðning og velferðarkerfið á vera það sterkt fólk fái þann stuðning sem það þarf. Til þess þarf þó skýra forgangsröðun. Velferðarkerfið verður ekki sterkt nema við ýtum undir og styðjum við framtak einstaklinga og árangur fyrirtækja. Samhengi verðmætasköpunar og velferðar verður ekki rofið.

Áslaug Arna segir Sjálfstæðisflokknum hafi ekki gengið nógu vel undanfarin misseri koma þessum skilaboðum á framfæri og pólitískir andstæðingar hafi reynt skilgreina flokkinn þannig hann vinni eingöngu í þágu tiltekins þjóðfélagshóps.

Dæmi um slíkar staðhæfingar er grein Reynis Böðvarssonar jarðskjálftafræðings sem fagnar mjög minnkandi fylgi Sjálfstæðisflokksins. Hann segir flokkinn aðeins gæta hagsmuna auðugasta hluta þjóðarinnar og segir Sjálfstæðismenn hafa frá upphafi reynt koma í veg fyrir allar umbætur í þágu þeirra sem ekki teljast auðugir.

Þolinmæði fólks er þrotin, fólk er búið nóg, búið nóg af Sjálfstæðisflokknum

Þessu andmælir Áslaug Arna og segir stefnu Sjálfstæðisflokksins vera fyrir alla og blómlegt atvinnulíf og öflugt velferðarkerfi séu ekki andstæður:

Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur sem hefur stuðlað því fólk geti hjálpað sér sjálft. Við þurfum ekki skipta um stefnu heldur ætlum við vinna áfram á grundvelli okkar hugmyndafræði. Standa með einstaklingnum, með fjölskyldunum. Sjálfstæðisstefnan er ekki stefna hinna fáu, heldur stefna fyrir alla.

Nafnalisti

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Facebook-síðufylgdi pistli um sumarskrifstofu samgönguráðherrans Ketil Solvik-Olsen, þegar lesandi benti á í athugasemd að skrifstofunni, fjölsæta bifreið með sportlegum reiðhjólum áfestum, var einmitt lagt á akrein sem ætluð er þeim síðarnefndu
  • Reynir Böðvarssonjarðskjálftafræðingur í Uppsölum í Svíþjóð

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 554 eindir í 29 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 26 málsgreinar eða 89,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,54.