Viðskipti

Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara

Bako Verslunartækni

2025-03-31 10:09

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Bako Verslunartækni (BVT) er fyrirtæki sem stofnað var samhliða kaupum á tveimur félögum; Bako Ísberg og Verslunartækni og Geiri.

Sverrir Viðar Hauksson er forstjóri og jafnframt einn eigenda félagsins. Aðspurður segir hann virkilega spennandi tíma framundan í rekstri fyrirtækisins og mörg tækifæri í líflegu og skemmtilegu umhverfi. Síðastliðið ár hefur verið lögð megin áhersla á sameina og samþætta reksturinn með góðum árangri. Með sterku nýju vörumerki sækjum við fram sem samhentur hópur fólks með skýra sýn á framtíðina ásamt því bjóða upp á fjölbreytni í vöruúrvali og persónulega þjónustu. Við kappkostum sýna frumkvæði og bjóða upp vörur í hæsta gæðaflokki, segir Sverrir.

Áralöng og farsæl viðskiptasambönd

Bako Verslunartækni býður upp á hágæðatæki, -tækni og -áhöld fyrir bæði fyrirtæki og heimili á Íslandi. Allt frá skörpustu hnífum yfir í verslunarlausnir og framleiðslutæki matvara og veitinga. Vörur sem eru gerðar af meisturum fyrir meistara. Bako Verslunartækni er með glæsilegan sýningarsal og verslun Draghálsi 22 í Reykjavík. Verslunin er meðal þeirra stærstu hérlendis fyrir fagfólk sem starfrækir stóreldhús og er í rekstri innan veitingageirans.

Sverrir segir fyrirtækið einnig sérhæfa sig í lausnum fyrir allar gerðir verslana, bakaría, hótela og vöruhúsa. Við leggjum áherslu á halda áfram efla þjónustustigið þar sem fagmennska, hraði og áreiðanleiki er í forgrunni. Við teljum mjög mikilvægt hlusta eftir og mæta þörfum viðskiptavina vel hverju sinni og bjóða upp á öflugar lausnir ásamt því vera leiðandi og framsækin með nýjungar.

Hann segir uppbyggilegt samband við birgja, framleiðendur, starfsfólk og viðskiptavini skilgreinir starfsemi fyrirtækisins. Bako Verslunartækni býður upp á gríðarlega fjölbreytt vöruúrval frá þekktum erlendum birgjum þar sem samvinnan er byggð á áralöngum og farsælum viðskiptasamböndum. Það sem er sammerkt með vörunum eru gæði og góð ending.

Markmiðið gera okkur og viðskiptavini enn betri

Við erum leiðandi á okkar sviðum þar sem við bjóðum upp á gæðavöru og þjónustu til fagfólks og einstaklinga, segir Sverrir. Við höfum bæði úr spila stöðluðum og sérsniðnum lausnum, allt eftir verkefnum og þörfum viðskiptavina hverju sinni. Stærð okkar og styrkur liggur í mannauði og öflugum hópi viðskiptavina sem við sinnum öllum stundum eftir bestu getu.

Aðspurður segir hann starfsfólk Bako Verslunartækni vera samheldið teymi sem hefur það eitt markmiði gera þau sjálf og viðskiptavini fyrirtækisins enn betri í því sem þau eru best í.

Sverrir tekur fram rætur fyrirtækisins liggi í sterkum og persónulegum tengslum við viðskiptavini. Sterk liðsheild starfsfólks skilar sér í ánægju meðal viðskiptavina sem er okkur mikilvæg hvatning til áframhaldandi miðlunar fræðslu og frumkvæði í daglegum samskiptum.

Við bjóðum upp á allt fyrsta flokks í tengslum við geymslu, meðhöndlun, eldun og framreiðslu matvæla. Viðskiptavinir okkar gera kröfur sem við kappkostum uppfylla hverju sinni. Okkar framlag er bjóða hágæða vöru og þjónustu fyrir bæði fyrirtæki og heimili á Íslandi, allt frá skörpustu hnífum yfir í verslunarlausnir og framleiðslutæki matvara og veitinga, segir Sverrir.

Öflug og þekkt vörumerki

Eins og áður hefur fram komið flytur Bako Verslunartækni vörur og tæki frá öflugum erlendum birgjum.

Rational er eitt þekktasta merkið í veitingageiranum og er þýskt fyrirtæki sem framleiðir hágæða gufusteikingarofna, veltipönnur og aðra fylgihluti fyrir veitingastaði og stóreldhús. Rational ofnarnir eru bestu vinir fagfólksins sem framreiða dags daglega um allan heim ljúffengar máltíðir og veitingar eins og best verður á kosið.

Meðal samstarfsaðila í verslanalausnum eru margir af stærstu framleiðendum heims, hvort heldur er í hillukerfum s.s. Linde Linovag, kælibúnaði frá Carrier eða innkaupakörfum frá Damixa.

Sífellt er unnið því bæta vöruvalið og nýverið tók Bako Verslunartækni við sem sölu- og þjónustuaðili TurboChef ofna á Íslandi. TurboChef ofnarnir eru þeim eiginleikum gæddir vera fjölhæfir hraðeldunarofnar án þess þó skerða gæði og næringargildi matvæla.

Söluráðgjafar hjá Bako Verslunartækni aðstoða fagfólk í matreiðslu við val á TurboChef ofnum og þjálfun starfsfólks. Eitt megin einkenni hraðeldunarofnanna frá TurboChef er þeir þarfnast ekki sérstakrar útloftunar og geta því auðveldlega staðið á borði í afgreiðslu veitingastaða. Ofnarnir eru sérlega notendavænir með myndrænu stýriborði fyrir mismunandi eldunaruppskriftir, halda vel hita og elda mjög hratt.

Ótrúlega mikið úrval

Bako Verslunartækni þjónustar fjölbreyttan hóp á fyrirtækjamarkaðnum eins og fram hefur komið. Verslunargeirinn hefur verið þar í aðalhlutverki frá fyrri tíð Verslunartækni & Geira og er þeim tengslum viðhaldið sterkt áfram hjá nýju félagi undir merkjum Bako Verslunartækni. Það er stöðug þróun í frysti- og kælibúnaði sem framleiddur er með umhverfislegu sjónarmiði leiðarljósi. Við erum leiðandi í bjóða upp á Co2 kælilausnir sem skilar sér í orkusparnaði fyrir viðskiptavini samanborið við önnur hefðbundin kælitæki.

Hann segir starfsfólk vinna statt og stöðugt því besta og þétta vöruframboðið og er starfsemi fyrirtækisins fyrst og fremst aðlöguð fyrirtækjamarkaði. En að sama skapi höfum við samhliða aukið vöruframboðið jafnt og þétt til einstaklinga og þá sérstaklega sem snýr vöruvali sem beint er ástríðukokkum á landsvísu.

Hjá okkur beinlínis finna allt fyrir eldhúsið; t.a.m. japanska hnífa í öllum verðflokkkum frá 12 mismunandi framleiðendum, tréskurðarbretti, glös frá Vicrila og Zwiesel, fjölbreytt úrval franskra vínkæla frá La Sommeliére, DeliVita pizzaofna ásamt fallegum borðbúnaði frá Villeroy & Boch og Steelite. Einnig bjóðum við upp á skemmtilegt úrval af barvörum; allar tegundir glasa, blandara, hristara, klakavéla og margt fleira, segir Sverrir Viðar Hauksson forstjóri Bako Verslunartækni lokum.

Nafnalisti

  • Bako Ísbergvel rekið fyrirtæki sem hefur verið í sókn
  • Carrierloftræstingarframleiðandi
  • Geirinafn
  • Linde Linovag
  • Sverrir Viðar Haukssonframkvæmdastjóri hjá Lýsingu
  • Zwieselþorp

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 938 eindir í 47 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 39 málsgreinar eða 83,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.