Útflutningsverðmæti fiskeldis 54 milljarðar á síðasta ári
Ritstjórn Viðskiptablaðsins
2025-03-31 10:18
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Heildarframleiðsla fiskeldisafurða var tæp 54,8 þúsund tonn á árinu 2024 sem er 10% aukning frá árinu 2023, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands. Langmest var framleitt af laxi eða tæplega 49,3 þúsund tonn. Magn bleikju var 4,8 þúsund tonn og dróst saman um 9% en aðrar tegundir voru undir 1.000 tonn.
Útflutningsverðmæti allra fiskeldistegunda jókst um 17% á milli ára og var 53,8 milljarðar króna árið 2024, þar af voru laxaafurðir um 47,7 milljarðar.
Gögn um fiskeldisframleiðslu í Evrópu ná til ársloka 2023 og sýna að Noregur var langstærsti framleiðandi á laxi með rúm 1,5 milljón tonna, tíu sinnum meira en næsta þjóð, Skotland (Bretland). Færeyjar og Ísland komu þar á eftir. Ísland framleiðir mest af bleikju, 5.248 tonn. Eldi regnbogasilungs er orðið lítið á Íslandi en Ítalía, Frakkland, Spánn, Danmörk og Finnland hafa verið með stöðuga framleiðslu á regnbogasilungi síðustu ár.
Nafnalisti
- Hagstofu Íslandsárið 2015
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 153 eindir í 8 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,89.