Nýi maðurinn lætur til sín taka - Vill landa eftirsóttum bita og endursemja við sinn besta mann
Helgi Fannar Sigurðsson
2025-03-31 10:18
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Bukayo Saka nálgast endurkomu á völlinn, en hann hefur ekkert spilað á þessu ári vegna meiðsla.
Arsenal hefur saknað Saka sárt en vonast nú til að hafa hann með sér í leikjunum gegn Real Madrid í 8 — liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en fyrri leikurinn fer fram í næstu viku.
Þá eru einnig tíðindi af samningamálum Saka, en Andrea Berta er tekinn við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal og ætlar að hjóla í það að endursemja við besta leikmann liðsins. Núgildandi samningur hans rennur út eftir rúm tvö ár.
Berta er nýtekinn við en er farinn að láta til sín taka. Samkvæmt nýjustu fréttum hefur hann sett það í forgang að fá hinn afar eftirsótta Viktor Gyokeres, framherja Sporting, í sumar.
Nafnalisti
- Andrea Berta
- Bukayo Sakaleikmaður Arsenal
- SportingPortúgal
- Viktor Gyokeresframherji Sporting Lisbon
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 128 eindir í 6 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,63.