Hyggst leggja 25 prósent toll á allar inn­fluttar bif­reiðar

Hólmfríður Gísladóttir

2025-03-27 06:42

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í gær stjórnvöld vestanhafs hygðust leggja 25 prósent toll á allar innfluttar bifreiðar. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd af Evrópusambandinu og Kanada.

Þetta er slæmt fyrir fyrirtækin, verra fyrir neytendur, sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í gær.

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, sagði um ræða beina árás á kanadíska vinnumarkaðinn.

Við munum verja starfsfólkið okkar, við munum verja fyrirtækin okkar, við munum verja landið okkar og við munum gera það saman, sagði Carney.

Síðar um daginn hótaði Trump frekari tollum ef Evrópusambandið og Kanada mynduðu bandalag um vinna efnahagslegan skaða á Bandaríkjunum.

Shigeru Ishiba, forsætisráðherra Japan, sagði stjórnvöld þar í landi íhuga til hvaða aðgerða yrði gripið. Að sjálfsögðu verða allir möguleikar til skoðunar, sagði hann.

Tollarnir munu að óbreyttu taka gildi 2. apríl næstkomandi en Trump hefur verið mjög yfirlýsingaglaður í tollamálum frá því hann tók við embætti og allt eins mögulegt áætlunin muni taka breytingum.

Hlutabréf í mörgum af stærstu bílaframleiðendum heims lækkuðu um þrjú til fimm prósent í kjölfar tilkynningarinnar.

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun hafa 90 prósent Demókrata áhyggjur af aðgerðum forsetans í tollamálum, 69 prósent óháðra og 57 prósent Repúblikana.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Mark Carneybankastjóri Englandsbanka
  • Shigeru Ishibafyrrverandi varnarmálaráðherra
  • Ursula von der Leyenforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 214 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.