Spursmál: Trump og Kristrún setja allt í uppnám
Ritstjórn mbl.is
2025-04-04 13:30
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Þjóðir heims hafa brugðist ókvæða við þeirri ákvörðun Trumps að leggja verndartolla á þjóðir heims. Sveitarfélögin eru í sama gír gagnvart aðgerðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Þetta er meðal þess sem rætt er á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn. Í fréttum vikunnar er sannarlega vikið að ákvörðun forsetans í Washington og til samtals um það mæta fyrrum ráðherrar Framsóknarflokksins, þau Willum Þór Þórsson og Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Þau ræða einnig gosið á Sundhnúkagígaröðinni sem varði stutta stund og gerði minni óskunda en í fyrstu virtist stefna.
Þátturinn er sýndur í spilaranum hér að neðan og hefst klukkan 14.
Sveitarfélögin allt annað en sátt
Þegar yfirferð á fréttum vikunnar sleppir mæta þeir beint frá Ísafirði og Fjarðabyggð þeir Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðar og Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.
Sveitarstjórnarmenn í fjölmörgum sveitarfélögum hringinn í kringum landið hafa brugðist ókvæða við þeim fyrirætlunum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að tvöfalda veiðigjöld á útgerðir landsins. Ljóst er að sú gríðarlega skattlagning mun hafa áhrif á miklu fleiri en fámennan hóp útgerðarmanna.
Rannsókn á vinnubrögðum Ríkisútvarpsins
Að loknu því spjalli sest Flóki Ásgeirsson, lögmaður Blaðamannafélags Íslands, niður með Stefáni Einari og ræðir þann möguleika sem nú er uppi um að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins setji á laggirnar rannsóknarnefnd til þess að fara ofan í saumana á aðkomu Ríkisútvarpsins að hinu svokallaða byrlunarmáli.
Flóki kemur fyrir hönd félagsins í viðtalið þar sem formaður þess, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, treystir sér ekki á vettvang til þess að ræða fyrri yfirlýsingar sínar um málið.
Fylgist með sneisafullum og spennandi þætti á mbl.is klukkan 14.
Þátturinn er aðgengilegur í Mogganum, nýju appi sem fólk getur hlaðið niður sér að kostnaðarlausu. En þá er einnig hægt að nálgast þáttinn á helstu hlaðvarpsveitum, meðal annars Spotify.
Nafnalisti
- Flóki Ásgeirssonlögmaður Hilmars
- Gylfi Ólafssonforstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
- Kristrún Frostadóttirformaður
- Lilja Dögg Alfreðsdóttirmenningarmálaráðherra
- Ragnar Sigurðssonoddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð
- Sigríður Dögg Auðunsdóttirformaður Blaðamannafélags Íslands
- Stefán Einarmenntaður viðskiptasiðfræðingur
- Trumpskosningabarátta
- Willum Þór Þórssonheilbrigðisráðherra
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 284 eindir í 16 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 87,5%.
- Margræðnistuðull var 1,70.