Trump segir skemmdar­verk á Teslum hryðju­verk

Samúel Karl Ólason

2025-03-19 10:08

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Pam Bondi, dómsmálaráðherra, segja skemmdarverk á Teslum séu hryðjuverk. Þeim sem fremji slík brot verði refsað harðlega. Þetta sögðu þau í kjölfar fjölda skemmdarverka á Teslum í Bandaríkjunum og íkveikja á bílasölum.

Skemmdarverk hafa verið unnin á Teslum víðsvegar um Bandaríkin en í gær var kveikt í fimm bílum við Tesla-sölu í Las Vegas. Engan hefur sakað svo vitað sé en í einu tilfelli hefur maður verið ákærður í Oregon eftir hann kastaði bensínsprengjum í Tesla-sölu og mætti svo aftur degi síðar og skaut á bygginguna, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Skotið hefur verið á fleiri sölustaði Tesla í Bandaríkjunum.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hélt því fram í viðtali á Fox News í gær skemmdarverkin væru fjármögnuð af áhrifamiklum Demókrötum, án þess þó færa rök fyrir þeim ásökunum.

Hann hefur einnig heitið því beita afli bandaríska ríkisins til láta þá sem fremja skemmdarverk gegn Tesla ganga gegnum helvíti.

Stutt er síðan Trump og Musk héldu sölukynningu á Teslum á lóð Hvíta hússins.

Musk sjálfur, sem er náinn bandamaður Trumps, hefur slegið á svipaða strengi og vill meina verið reyna myrða hann vegna starfa hans fyrir Trumps og pólitískra aðgerða. Hann var einnig í viðtali á Fox í gær, þar sem hann velti vöngum yfir því hver væri fjármagna þessar aðgerðir gegn sér.

Bondi mætti þar að auki einnig í viðtal á Fox í gær og sagðist ætla komast til botns í því hver stæði bakvið skemmdarverkin. Hún ítrekaði það svo í yfirlýsingu.

Þessar fjölmörgu ofbeldisfullu árásum á eigur Tesla eru ekkert annað en hryðjuverk, skrifaði Bondi í yfirlýsingu sem birt var á vef dómsmálaráðuneytisins. Hún sagði nokkra meinta brotamenn hafa verið ákærða vegna skemmdarverkanna og í einhverjum tilfellum stæðu viðkomandi frammi fyrir að minnsta kosti fimm ára fangelsisvist.

Við munum halda rannsóknum áfram og refsa harðlega þeim sem koma þessum árásum, þar á meðal þeim sem vinna í skuggunum við skipuleggja og fjármagna þessa glæpi.

Bondi var á árum áður dómsmálaráðherra Flórída en undanfarin ár var hún hluti af persónulegu lögfræðingateymi Trumps. New York Times segir hana hafa verið undir miklum þrýstingi varðandi það lýsa því yfir skemmdarverkin væru hryðjuverk.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Fox Newsbandarísk sjónvarpsstöð
  • New York Timesbandarískt dagblað
  • Pam Bondifyrrverandi dómsmálaráðherra Flórída

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 389 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 83,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,72.