Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum
Berghildur Erla Bernharðsdóttir
2025-03-31 20:32
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Ríkisstjórnin ætlar að hagræða um ríflega hundrað milljarða í opinberum rekstri á næstu árum og stefnir að því að ná jafnvægi í rekstri ríkisins ári fyrr en fyrrverandi ríkisstjórn. Þá verða kjör öryrkja og eldri borgara stórlega bætt. Forsætisráðherra segir Flokk fólksins hafa haft mikil áhrif á nýja fjármálaáætlunina
Ný fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026–2030 var kynnt í morgun. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra sagði á blaðamannafundi í morgun einblínt á efnahagslegan stöðugleika, hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta.
Samkvæmt áætluninni er stefnt er að því að ríkissjóður verði hallalaus 2027 og hið opinbera 2028. Frá 2019 hefur ríkissjóður verið rekin með halla.
„Það er helst að við ætlum að ná jafnvægi í rekstri ríkisins ári fyrr en síðasta ríkisstjórn áætlaði. Þessi áætlun er að því leyti öðruvísi að í henni eru engar óútfærðar afkomubætandi aðgerðir. Nú liggur alveg fyrir til hvaða aðgerða ríkisstjórnin mun taka til að ná markmiðum sínum,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra á blaðamannafundi um fjármálaáætlunina í morgun.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að ná þessum markmiðum koma fram í næstum tvö hundruð blaðsíðna skýrslu. Til að byrja með hyggst ríkisstjórnin hagræða um hundrað og sjö milljarða króna á tímabilinu m.a. með kerfisbreytingum, endurskoðun verkefna og sameiningu stofnanna.
Störfum muni fækka í einhverjum tilvikum
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í dag tilefni af því að ríkisstjórnin hefur starfað í hundrað daga, að horft væri til sparnaðarráða frá almenningi í fjármálaáætluninni. Óhjákvæmilega muni störfum fækka.
„Það verður ráðist í sameiningar. Það er ekki útgangspunktur að reyna að fækka starfsfólki. Lykilatriði er að reyna að bæta þjónustu og fara betur með fé. Það er ekki aðalatriðið að vernda störf, þannig að í einhverjum tilvikum mun þeim fækka,“ sagði Kristrún á fundinum í dag.
Nýtt bifreiðagjald 1. júlí
Í fjármálaáætlun eru nýir tekjustofnar taldir til eins og veiðigjöld, ný útfærsla á bifreiðagjaldi sem tekur gildi 1. júlí og gert er ráð fyrir gjaldi að náttúruperlum landsins.
Alls fara 35 milljarðar í ný útgjöld. Af þeim fara mest í félags- og tryggingamál eða næstum ellefu milljarða króna. Það kemur svo fram í umbótum sem snerta 65 þúsund öryrkja og eldri borgara. Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra var afar ánægð með breytinguna á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.
„Þetta kerfi mun tryggja umtalsverðar kjarabætur fyrir 95 prósent öryrkja,“ sagði Inga Sæland.
Kristrún Frostadóttir segir Flokk fólksins hafa sett sitt mark á fjármálaáætlunina.
„Við værum ekki að leggja fram þessa fjármálaáætlun nema vegna þess að við erum í ríkisstjórn með Flokki fólksins. Við skulum bara hafa það á hreinu, Margar af stóru ákvörðunum sem er verið er að taka eru vegna þess að þessi ríkisstjórn er samsett eins og hún er í dag,“ sagði Kristrún á blaðamannafundinum í dag.
35 milljarða í ný útgjöld
Alls fara ríflega sex milljarðar af nýjum útgjöldum í almanna- og réttaröryggi og utanríkismál. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það nauðsynlegt, meðal annars vegna sviptinga í alþjóðamálum.
„Hlutfallslega mesta aukningin í fjármálaáætlun er til öryggis- og varnarmála. Ekki síst til að byggja upp áfallaþol hér á landi og efla innviði,“ sagði Þorgerður á fundinum í dag.
Nafnalisti
- Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
- Inga Sælandformaður
- Kristrún Frostadóttirformaður
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 518 eindir í 34 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 32 málsgreinar eða 94,1%.
- Margræðnistuðull var 1,64.