Viðskipti

Ásthildur Lóa: „Við erum löngu hætt að gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum”

Ritstjórn DV

2025-03-13 10:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, segir dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í gær í máli hennar og eiginmanns hennar gegn íslenska ríkinu hafi verið mikil vonbrigði.

Ásthildur og eiginmaður fóru fram á skaðabætur og vildu meina sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi staðið ranglega nauðungarsölu á fasteign þeirra í Garðabæ og ekki tekið tillit til fyrningar vaxta.

Sjá einnig: Ásthildur Lóa tapaði vegna fyrningar

Arion banki fór fram á nauðungarsöluna árið 2016 og átti bankinn hæsta boðið þegar salan fór fram árið eftir. Töldu hjónin ekki hefði verið tekið tillit til þeirra vaxta sem miða hafi átt við þegar salan fór fram. Vildu þau meina þau hefðu átt í sinn hlut 10,6 milljónir króna af söluverði fasteignarinnar við nauðungarsöluna en Arion banki greiddi alls 60 milljónir fyrir eignina. Er í niðurstöðu dómsins helsta ástæðan sögð kröfur hjónanna á hendur ríkinu séu fyrndar.

Ásthildur Lóa sagði í frétt RÚV í gær hún ætti von á því dómnum yrði áfrýjað. Hún tjáði sig svo frekar um málið á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi þar sem hún sagði:

Hann kom því miður ekki á óvart dómur héraðsdóms gegn okkur Haffa í dag. Við erum löngu hætt gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum. En lífið hefur sínar leiðir til benda manni á samhengi hlutanna, og hvað það er sem virkilega skiptir máli, sagði Ásthildur sem rifjaði upp það hafi verið henni ofarlega í huga móðir hennar, Guðný Sigríður Friðsteinsdóttir, hafi einmitt látist á þessum degi fyrir 45 árum eftir 10 ára baráttu við krabbamein.

Mér hefði aldrei dottið í hug bera þetta tvennt saman ef ekki væri sami dagur og sama dagsetning, þó 45 ár séu á milli. Dómurinn í dag var mikil vonbrigði en hann var ekki áfall og breytir ekki lífinu til frambúðar. Það gæti margt verra gerst og núna er tíminn til líta á björtu hliðarnar, sagði hún enn fremur.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Facebook-síðufylgdi pistli um sumarskrifstofu samgönguráðherrans Ketil Solvik-Olsen, þegar lesandi benti á í athugasemd að skrifstofunni, fjölsæta bifreið með sportlegum reiðhjólum áfestum, var einmitt lagt á akrein sem ætluð er þeim síðarnefndu
  • Guðný Sigríður Friðsteinsdóttir
  • HaffiHafþór Björn Júlíusson

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 334 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.