Segir Arnór líta rudda­lega vel út

Sindri Sverrisson

2025-03-17 13:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þjálfari Arnórs Sigurðssonar hjá sænska meistaraliðinu Malmö er afskaplega spenntur fyrir því geta brátt farið nýta krafta íslenska landsliðsmannsins sem félagið lagði allt í sölurnar til klófesta í febrúar.

Arnór sneri aftur í sænska boltann eftir hafa verið bolað út úr leikmannahópi Blackburn og fengið samningi sínum við félagið rift. Hann hafði glímt við erfið veikindi og meiðsli en það stoppaði Malmö ekki í greiða Arnóri jafnvirði um tvö hundruð milljóna íslenska króna til hann, enda orðspor Arnórs afar gott Svíþjóð eftir tíma hans hjá Norrköping.

Arnór er ekki byrjaður spila með Malmö og var því ekki valinn í fyrsta landsliðshóp Arnars Gunnlaugssonar, vegna komandi leikja við Kósovó, en er þó á réttri leið.

Henrik Rydström, þjálfari Malmö, segir Arnór hefði alveg getað spilað bikarleikinn við IFK Gautaborg í gær, sem Malmö vann 32 í framlengingu eftir Kolbeinn Þórðarson hafði jafnað metin fyrir Gautaborg á 87. mínútu.

Klæjar í puttana tefla Arnóri fram

Núna er Arnór tilbúinn. Við vorum með hann í hópnum en ákváðum svo hafa hann ekki á bekknum því við viljum hann geti fyrst æft af fullum krafti í tvær vikur, sagði Rydström við Fotbollskanalen og var þá spurður hvernig Arnór hefði litið út á æfingum hingað til:

Síðustu vikuna hefur hann mestu verið með í öllum æfingum en hugsunin er núna verði hann með fullu. Ég verð segja hann lítur ruddalega vel út, sagði Rydström og bætti við:

Þannig sem þjálfari þá klæjar mann auðvitað í puttana hafa hann með í hópnum en ég ákvað gera það ekki fyrir skammvinnan árangur í bikarnum. Ég hef frekar kosið menn æfi vel og ekki valið leikmenn sem eru eitthvað tæpir. Við hugsum til lengri tíma, jafnvel með Arnór, sagði Rydström.

Arnar Gunnlaugsson var spurður út í Arnór eftir valið á landsliðshópnum í síðustu viku og sagði þá við Vísi:

Við hittumst í Liverpool þegar við sáum saman Hákon [Arnar Haraldsson] spila við Liverpool [21. janúar í Meistaradeild Evrópu]. Hann er kominn í frábært félag, Malmö, sem ég þekki nokkuð vel. Hann er bara nýbyrjaður æfa aftur og er klárlega einhver sem við fylgjumst með í framtíðinni.

Nafnalisti

  • Arnar Gunnlaugssonþjálfari
  • Arnar Haraldssonráðgjafi
  • Arnór Sigurðssonlandsliðsmaður
  • BlackburnBdeildarlið
  • Fotbollskanalensænskur miðill
  • Hákonsonur Bjarna Gíslasonar, pr. á Söndum í Dýrafirði, og k.h., Helgu Árnadóttur húsfreyju
  • Henrik Rydströmþjálfari Malmö FF
  • IFK Gautaborgsænskt knattspyrnufélag
  • Kolbeinn ÞórðarsonBreiðablik
  • Meistaradeild Evrópulið

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 400 eindir í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 88,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.