Menning og listir

Gullkistan Vestfirði

Ritstjórn Bæjarins besta

2025-03-28 14:03

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Mánudaginn 17. mars var haldin skapandi vinnustofa á Vestfjarðastofu til undirbúa sýninguna Gullkistan Vestfirðir.

Vinnustofan var opin öllum sem eiga aðild Sóknarhópi Vestfjarða og mættu um 40 manns.

Gullkistan Vestfirðir er Vestfjarðasýning sem verður haldin 6. september 2025 í íþróttahúsinu á Torfnesi.

Á sýningunni gefst vestfirskum fyrirtækjum og annarri starfsemi á svæðinu tækifæri til kynna sig fyrir Vestfirðingum og gestum.

Vinnustofan hófst á sameiginlegum hádegisverði þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og María Rut Kristinsdóttir, þingkona Norðvesturkjördæmis heilsuðu upp á gesti.

Síðan leiddi Bragi Valdimar Skúlason vinnu þar sem þátttakendur komu fram með hugmyndir um hvernig þeir vildu helst sjá sýninguna og viðburði henni tengda.

Farið ver yfir markmið, hver ætti vera kjarni sýningarinnar og rætt hvaða sögu við viljum segja. Niðurstaðan var í stuttu máli kynna nýsköpun, mannauð, þekkingu, menningu og okkar samheldna samfélag.

Á sýningunni verður kynnt hið öfluga atvinnulíf sem þrífst á Vestfjörðum, en ekki síður hlutir eins og tækifæri í menntun og einstök menning. Þá á hún fanga þann uppgang sem einkennir vestfirskt samfélag um þessar mundir og hvað það er gott búa á Vestfjörðum. Gullkistunni Vestfirðir er ætlað sameina Vestfirðinga og kynna það sem er gerast á Vestfjörðum.

Nafnalisti

  • Bragi Valdimar Skúlasonformaður Félags tónskálda og textahöfunda
  • María Rut Kristinsdóttirkynningarstýra UN Women
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 211 eind í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 90,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.