Stjórnmál

Vill að sveitarstjórinn segi af sér formennsku Veiðifélags Þjórsár

Iðunn Andrésdóttir

2025-04-04 00:33

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps á miðvikudaginn lagði Axel Á Njarðvík, nefndarmaður í stjórninni, fram bókun þar sem hann skoraði á oddvita og sveitarstjóra hreppsins, Harald Þór Jónsson, segja af sér formennsku í Veiðifélagi Þjórsár.

Forsaga málsins er Haraldur hlaut nýverið kjör sem formaður veiðifélagsins á aðalfundi þess en einhverjum, þar á meðal Axel, kann þykja hann leika tveimur skjöldum enda liggur fyrir Veiðifélag Þjórsár hefur ítrekað lýst yfir áhyggjum sínum af uppbyggingu Hvammsvirkjunar.

Fráfarandi formaður félagsins ítrekað lýst áhyggjum sínum

Þjórsársvæðið er mesta virkjunarsvæði á Íslandi og yrði Hvammsvirkjun í Þjórsá fyrsta stóra virkjun Landsvirkjunar með jökullóni í miðri byggð og er virkjunin vægast sagt umdeild. Til laxastofninn geti þrifist ofan stíflunnar á setja upp laxastiga og sérstaka seiðafleytu til hjálpa seiðum komast til sjávar.

Haraldur styður byggingu Hvammsvirkjunar og vill láta reyna á svonefnda seiðfleytu sem hönnuð hefur verið fyrir virkjunina en frárfarandi formaður veiðifélagsins hefur sett sig upp á móti áformunum og hefur miklar áhyggjur af framtíð laxastofnsins í Þjórsá.

Veiðifélag Þjórsár hefur ítrekað bent á virkjunarframkvæmdirnar geti haft óafturkræf áhrif á gönguleiðir laxfiska og vistkerfi Þjórsár.

Ekki eðlilegir stjórnsýsluhættir

Í bókuninni segir Axel sveitarstjórnina hafa falið Haraldi mæta á aðalfund Veiðifélags Þjórsár í febrúar fyrir hönd Skeiða- og Gnúpverjahrepps og veitt honum umboð til fara með atkvæði sveitarstjórnarinnar.

Ekki hafi þó legið fyrir Haraldur hygðist bjóða sig til formennsku félagsins á fundinum hafi sveitarstjórnin veitt honum umboð til þess. Það séu ekki eðlilegir stjórnsýsluhættir af hálfu kjörins fulltrúa mati Axels.

Ég skora á Harald segja þegar af sér, sem formaður veiðifélags Þjórár, í ljósi þess hann getur ekki bæði unnið með þeim einbeitta og fyrirliggjandi vilja virkja Þjórsá við Hvamm, Holt og Urriðafoss og á sama tíma staðið vörð um lífríki laxastofnsins í Þjórsá, segir í bókuninni.

Var beðinn um bjóða sig fram

Í samtali við fréttastofu segir Haraldur kjör hans ef eitthvað til marks um breytta stefnu Veiðifélagsins enda lýðræðislega kjörið í sæti stjórnarinnar. Allir geti boðið sig fram og augljóst það hafi verið vilji stjórnarinnar og félagsmanna kjósa sér nýjan formann.

Spurður hvort eðlilegt sitja beggja megin borðs í máli sem þessu segir Haraldur ekkert óeðlilegt við hann gegni báðum störfum enda beri hann hagsmuni nærsamfélagsins fyrir brjósti og hafi verið beðinn um bjóða sig fram.

Ef ég væri fara gegn vilja félagsmanna þá hefði ég einfaldlega ekki hlotið kjör, segir Haraldur.

Ekki hafi ríkt samstaða innan félagsins um þá vegferð sem hafi verið síðastliðin ár hvað varðar afstöðu til Hvammsvirkjunar en ljóst vilji fyrir því skipta um kúrs. Hann telji það vilja meirihluta veiðifélagsins gera sitt besta til láta áform Landvirkjunar ganga sem best upp fyrir nærsamfélagið og lífríkið í Þjórsá.

Ég hef barist fyrir hagsmunum nærsamfélagsins og mun halda áfram gera það.

Nafnalisti

  • Axel Á Njarðvík
  • Harald Þór Jónssonoddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps
  • Haraldur Þór Jónssonsveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 509 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 85,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.