Stjórnmál

Orðið á götunni: Tengdamóðirin var í sambandi við Áslaugu Örnu

Eyjan

2025-03-22 14:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Orðið á götunni er formaður Sjálfstæðisflokksins og fleiri þingmenn hans hafi orðið sér til minnkunar með því þrástagast í gær á rangfærslum úr fréttaflutningi Morgunblaðsins, RÚV og fleiri miðla um málið sem kennt er við frá farandi barnamálaráðherra löngu eftir fram voru komnar upplýsingar sem hröktu þær rangfærslur. Vinnubrögð fréttamanna á þessum miðlum í þessu máli eru raunar svo hroðvirknisleg með réttu mætti kalla eftir rannsókn á þeim.

Í útvarpsviðtali í hádeginu í dag afgreiddi Ólafur Harðarson, stjórnmálaprófessor emeritus, þær ásakanir sem settar hafa verið fram á hendur Ásthildi Lóu Þórsdóttur og Kristrúnu Frostadóttur í þessu máli sem tilhæfulausar með öllu. Fátítt er orðvari maður tali svo afdráttarlaust.

Orðið á götunni er athyglisvert einn mesti orðhákur í þingliði Sjálfstæðismanna hefur ekkert látið heyra frá sér opinberlega um mál Ásthildar Lóu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem fyrir þremur vikum var hársbreidd frá því kjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, geystist fram á völlinn í síðustu viku og gagnrýndi Ásthildi Lóu harðlega fyrir ummæli hennar um dómstóla svo athygli vakti, ekki síst í því ljósi ferill Áslaugar sem dómsmálaráðherra er í besta falli blettóttur.

bregður hins vegar svo við Áslaug Arna, sem sjaldan sleppir tækifæri til láta ljós sitt skína í fjölmiðlum, er þögul sem gröfin um þetta mikla hitamál. Orðið á götunni er það ekki tilviljun ein.

RÚV birti í gær stórfurðulegt viðtal við fyrrverandi tengdamóður barnsföður Ásthildar Lóu. Einhvern veginn tókst fréttamanni ríkismiðilsins horfa fram hjá því þegar fyrrverandi tengdamóðirin lét þess sérstaklega getið í fundarbeiðni til forsætisráðherra í lagi væri barnamálaráðherra sæti fund þeirra var fundarbeiðandi sérstaklega búinn aflétta trúnaði um erindið gagnvart barnamálaráðherra.

Látum það liggja milli hluta. Furðuviðtalið við tengdamóðurina fyrrverandi er ekki hið eina sem varpar skugga á vinnubrögð fréttastofu RÚV í þessu máli. Í tengslum við viðtalið birti RÚV tímalínu málsins út frá sjónarhorni tengdamóðurinnar fyrrverandi. Þar kemur fram föstudaginn 14. mars sl., eftir forsætisráðuneytið hafði tjáð tengdamóðurinni fyrrverandi ekki yrði af fundi með forsætisráðherra vegna málsins, sendi tengdamóðirin fyrrverandi Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, tölvupóst. Áslaug Arna hafði því vitneskju um erindi tengdamóðurinnar fyrrverandi minnst sex dögum áður en RÚV birti fyrstu frétt sína um málið á fimmtudagskvöld.

Orðið á götunni er þessi tengsl Áslaugar Örnu kunni skýra margt í þessum máli og hvernig árásum fjölmiðla á hendur Ásthildar Lóu og Kristrúnar Frostadóttur hefur verið háttað. Áslaug Arna var formannskandídat skrímsladeildar Sjálfstæðisflokksins í nýliðnum formannskosningum og margir hafa talið sig nema handbragð skrímsladeildarinnar í aðförinni gegn Ásthildi Lóu og ríkisstjórninni.

Áslaug Arna hefur mikil og bein tengsl við Morgunblaðið, sem er heimkynni skrímsladeildar Sjálfstæðisflokksins, og ef fréttaflutningur um þetta mál hefði hafist þar hefði það verið óþægilega nálægt þingmanninum. Orðið á götunni er af þeim sökum hafi málinu verið lekið til Ríkisútvarpsins, til þess búa til fjarvistarsönnun fyrir Morgunblaðið sem síðan var ekki lengi hoppa á vagninn og básúna og magna upp allar rangfærslurnar sem komu fram í fréttaflutningi RÚV.

Orðið á götunni er eitthvað undarlegt við það fyrrverandi tengdamóðir barnsföður barnamálaráðherra skuli skyndilega hafa fundið sig knúna til flagga 40 ára ástarævintýri fyrrverandi tengdasonarins næstum þremur mánuðum eftir Ásthildur Lóa settist í stól barnamálaráðherra. Og ansi er það skondið hve vel þetta fellur hagsmunum valdamikilla og fjársterkra afla sem leynt og ljóst vilja þessa ríkisstjórn feiga.

Orðið á götunni er í samanburði við afglöp Bjarna Benediktssonar í embætti fjármálaráðherra við söluna á Íslandsbanka hlægilegt Ásthildur Lóa skuli þurfa gjalda fyrir næstum 40 ára ástarævintýri með því afsala sér ráðherrastól. Bjarni færði sig í annað ráðuneyti er hann hefði með réttu átt víkja úr ríkisstjórn. Gilda aðrar reglur fyrir aðra ráðherra, sem ekki eru Sjálfstæðismenn?

Nafnalisti

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Ólafur Harðarsonstjórnmálafræðiprófessor

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 642 eindir í 24 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.