RÚV Orð formlega tekið í notkun: Nýtt tæki til íslenskunáms fyrir innflytjendur

Innanríkisráðuneyti

2024-09-04 16:25

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

RÚV Orð, nýr vefur sem veitir innflytjendum aðgang fjölbreyttu íslenskunámi í gegnum sjónvarpsefni frá RÚV, hefur verið formlega opnaður fyrir almenning. Eftir vel heppnaðar notendaprófanir er RÚV Orð aðgengilegt öllum sem vilja efla íslenskukunnáttu sína á sínum hraða.

Verkefnið er afrakstur samstarfs menningar- og viðskiptaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og mennta- og barnamálaráðherra ásamt RÚV við Språkkraft, óhagnaðardrifið sænskt félag sem hefur þróað nýstárlega máltæknilausn þar sem notendur velja eigið færnistig í tungumálinu.

Fjölbreytt efni nýtt í námið

RÚV Orð bætir verulega aðgengi innflytjenda íslenskukennslu, þar sem fólk getur lært á eigin forsendum og á eigin hraða. Notendur eiga möguleika á velja sjónvarpsefni úr fjölbreyttri dagskrá RÚV og tengja það við sitt eigið tungumál; valið stendur á milli ensku, frönsku, þýsku, lettnesku, litáísku, pólsku, rúmensku, spænsku, taílensku og úkraínsku. Notendur geta svo stillt íslenskufærni sína eftir sex færnistigum Evrópska tungumálarammans, frá byrjendum upp í geta auðveldlega lesið nánast allt ritað mál á íslensku.

RÚV Orð mun stórbæta möguleika innflytjenda til læra íslensku. Það gleður mig hægt nýta það dýrmæta menningarefni sem verður til hjá RÚV í íslenskukennslu fyrir innflytjendur og til auðvelda þessum hópi fylgjast kynnast íslensku samfélagi og menningu, segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Viðmót notenda er þægilegt og gagnvirkt, þar sem þeir geta leyst verkefni, vistað orð til læra síðar, og fylgst með framvindu sinni. Litakóðaður íslenskur texti á skjánum auðveldar notendum fylgjast með því sem fer fram og skapar einstaklingsmiðaða reynslu sem hvetur til virkrar þátttöku.

RÚV Orð eykur verulega fjölbreytni efnis. Það svarar ákalli innflytjenda og hjálpar þeim tileinka sér íslensku. Námið hentar mismunandi aldurshópum, það er persónubundið, stundað á eigin forsendum og hægt er læra af efni á áhugasviði viðkomandi. Góð íslenskukunnátta er valdeflandi og jafnar tækifæri til náms og virkrar þátttöku á öllum sviðum samfélagsins. Framtakið er metnaðarfullt og velkomin viðbót í íslenskukennslu fyrir innflytjendur á öllum aldri, segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Markmið RÚV Orð er stuðla inngildingu fólks með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku samfélagi. Verkfærið tryggir aðgang stafrænni tungumálaþjálfun sem byggð er á fjölbreyttu og áhugaverðu efni úr miðlum RÚV. Með þessu eykst aðgengi innflytjenda íslensku samfélagi og lýðræðislegri umræðu, sem mun styrkja stöðu þeirra í samfélaginu.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra: RÚV Orð gjörbreytir möguleikum innflytjenda til fylgjast með íslenskum fréttum, pólitík og samfélagsumræðu. Þannig er ekki einungis um afar sniðugt tungumálanám ræða heldur gegnir RÚV Orð mikilvægu hlutverki við inngildingu fólks í íslenskt samfélag.

Með RÚV Orð er stigið stórt skref í átt því íslenskan verði aðgengilegri fyrir allahvar sem er og hvenær sem er.

Nafnalisti

  • Ásmundur Einar Daðasonþáverandi félags- og barnamálaráðherra
  • Guðmundur Ingi Guðbrandssonþáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra
  • Lilja Alfreðsdóttirþáverandi mennta- og menningarmálaráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 479 eindir í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 20 málsgreinar eða 90,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.