Snéru heim eins og rokk­stjörnur og komust á súluna á Astró

Sindri Sverrisson

2025-03-31 07:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þeir koma til baka þarna 95 eins og einhverjar rokkstjörnur. Þetta segir Rósant Birgisson um æskuvini sína, tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni, þegar ævintýraleg endurkoma þeirra í íslenska boltann og ekki síður kraftmikil endurkoma í íslenska dægurmenningu, árið 1995, var rifjuð upp í fyrsta þætti af A & B.

Brot úr fyrsta þætti, sem frumsýndur var á Stöð 2 og Stöð 2 Sport í gærkvöld, sjá hér að neðan. Um er ræða fjögurra þátta seríu og strax ljóst um afar áhugaverða þætti er ræða.

Þegar þeir koma heim 95 þá koma tvær súperstjörnur heim, það er ekki mikið flóknara, segir Bjarni Guðjónsson sem er sex árum yngri en tvíburarnir og man vel eftir því þegar þeir komu 22 ára í nokkuð stutt stopp heim á Akranes úr atvinnumennsku, áður en þeir héldu svo aftur út til Þýskalands.

Skagaliðið á þeim tíma var frábært, á þvílíkri siglingu í gegnum deildina, gaman á vellinum, en þeir koma samt heim og lyfta öllu. Ég held þeir hafi ekki bara lyft fótboltanum uppi á Skaga heldur allir deildinni. Arnar var á þeim tíma sérstaklega áberandi og skoraði fimmtán mörk í sjö leikjum en svo var líka allt hitt. Auglýsingarnar, viðtölin í Séð og heyrt og þetta allt saman, segir Bjarni.

Fundum við vorum í tísku

Það var ekkert leiðinlegt athygli, ég viðurkenni það alveg. Við klæddum okkur vel upp og fundum fyrir því við vorum í tísku, segir Arnar sjálfur í þættinum.

Ég held þetta í fyrsta skipti sem það er nánast svona Hollywood-stjarna í íslensku deildinni, bendir Bjarni á.

Árið áður fóru þeir út borða með æskuvinunum en 95 var farið út borða með Baltasar, Ingvari Þórðar og Helga Björns, segir Rósant og rifjar upp skemmtistaðurinn Astró hafi verið aðalstaðurinn á þessum tíma.

Astró var einhvers konar klúbbur sem við munum aldrei sjá aftur á Íslandi. Það var koma þessi nýja VIP-stemning. Þú keyptir stóra kampavínsflösku og fékkst nafnið þitt upp á vegg, segir Rósant.

Vildum ekki vera minni menn

Jerry Seinfeld, Mel B, Fjölnir Þorgeirs og Skítamórall voru á meðal þeirra sem fengu nafnið sitt upp á súlu á Astró, með kaupum á veglegri kampavínsflösku, og að sjálfsögðu bættust nöfn Arnars og Bjarka við:

Það þótti merkilegt komast á þessa súlu. Við vildum ekki vera minni menn en aðrar stjörnur á þessum tíma. Við vorum fljótir kaupa eina slíka [kampavínsflösku] og gott ef Eyjólfur Sverris fylgdi ekki með í kaupbæti, segir Arnar.

Enginn þeirra drakk sopa af þessu kampavíni en þetta var stemningin, segir Rósant og Bjarki tekur undir það:

Við vorum aldrei í neinu rugli. Engin drykkja á okkur eða neitt þannig. Við sóttum auðvitað skemmtistaði en fótboltinn var númer eitt, tvö og þrjú.

Þættirnir um Arnar og Bjarka verða sýndir á sunnudagskvöldum á Stöð 2 og Stöð 2 Sport.

Nafnalisti

  • Arnarfrystitogari
  • Baltasarfullkunnugt um að ekki hafa öll skrif hér heima um þáttinn verið jákvæð
  • Bjarki Gunnlaugssontvíburabróðir
  • Bjarni Guðjónssonþjálfari karlaliðs KR í knattspyrnu
  • Eyjólfur Sverris
  • Fjölnir Þorgeirs
  • Helgi Björnmótleikari Önnu Svövu úr sjónvarpsþáttunum Ligeglad
  • Ingvar Þórðar
  • Jerry Seinfeldbandarískur grínisti
  • Mel Bfyrrverandi Kryddpía
  • Rósant Birgissonskemmtanastjóri Hverfisbarsins
  • Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 527 eindir í 27 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 81,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.