Slys og lögreglumál

Tveir voru handteknir í aðgerð lögreglunnar gegn barnaníðsefni

Ágúst Borgþór Sverrisson

2025-04-02 14:36

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum þar sem tekin var niður vefsíða, Kidflix, en á henni var finna barnaníðsefni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Aðgerðin náði til á fjórða tug landa, en fyrir henni fóru lögregluyfirvöld í Bæjaralandi í Þýskalandi með fulltingi Europol, segir í tilkynningunni og kemur fram tveir menn á höfuðborgarsvæðinu voru handteknir í aðgerðinni, húsleit var gerð á heimilum þeirra og lagt hald á búnað í þágu rannsóknarinnar.

Tæplega tvær milljónir notenda höfðu skráð sig inn á barnaníðssíðuna undanfarin þrjú ár, en á henni var finna um 72 þúsund myndbönd þegar lögreglan lét til skarar skríða og lokaði síðunni.

Nánari upplýsingar er finna á heimasíðu Europol: Global crackdown on Kidflix, a major child sexual exploitation platform with almost two million users | Europol

Nafnalisti

  • Globalbresk útvarpssamsteypa

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 149 eindir í 5 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 4 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,53.