Grind­víkingum hleypt inn í bæinn á ný

Atli Ísleifsson

2025-04-02 14:36

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja í Grindavík hafa fengið heimild til fara inn fyrir lokunarpósta og halda inn í bæinn. Lokunarpóstar eru á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi en ekki til orkuversins í Svartsengi, Bláa lónsins og Northern Light Inn. Ferðamönnum er ekki hleypt inn til Grindavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, en ríkislögreglustjóri ákvað í samráði við lögreglustjóra fyrir hádegi í dag færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig.

Fram kemur aðgangur því enn takmarkaður inn á hættusvæðið, en Grindavíkurvegur opinn inn Bláa lóni og orkuverinu í Svartsengi.

Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt fara inn fyrir lokunarpósta. Koma þarf við í björgunarhúsinu í Grindavík áður en farið er inn á merkt vinnusvæði. Hús björgunarsveitarinnar Þorbjörns er staðsett Seljabót 10, Grindavík.

Íbúar Grindavíkur og starfsmenn þar hafa heimild til fara inn fyrir lokunarpósta inn til Grindavíkur um Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Ákveðið með hliðsjón af stöðu jarðhræringa. Lokunarpóstar ekki til orkuversins, Bláa lónsins og Northern Light Inn. Flóttaleiðir eru um Bláalónsveg og Grindavíkurveg.

Sem stendur er ferðamönnum ekki hleypt inn til Grindavíkur. Færð á vegum getur spillst með stuttum fyrirvara á þessum tíma árs.

Íbúar og starfsmenn fyrirtækja dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð. Hver og einn verður bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Það sama gildir um ferðamenn. Vont veður og slæm færð dregur úr öryggi fólks inn á hættusvæðum jafnframt því hafa áhrif á vöktunargetu Veðurstofu Íslands.

Lögreglustjóri mælir með því fólk skoði meðfylgjandi hættumatskort Veðurstofu Íslands. Þá mælir hann með því fólk kynni sér efni fréttatilkynningar ríkislögreglustjóra sem send var út 1. apríl sl.

Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi innan hættusvæða sem felast m.a. í hækkun varnagarða, í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af, segir í tilkynningunni.

Engin virkni er sjáanleg í gossprungu sem opnaðist í gær um klukkan 9:45 suðvestan af fjallinu Þorbirni, norðan við Grindavík. Enn logar þó glóð í nýju hrauni. mati vísindamanna flæðir kvika enn inn í kvikuganginn. Svæðið er óstöðugt og varasamt. Talsverð jarðskjálftavirkni mældist í gær á Reykjanesskaga en í gærkvöldi tók draga úr þeirri virkni en hún heldur þó áfram.

Nafnalisti

  • Northern Light Innhótel
  • Þorbjörnséð frá hlíðum Sýlingafells

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 415 eindir í 27 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.