Viðskipti

Hluta­bréf Mercedes og Porsche taka dýfu

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-03-27 14:58

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hlutabréf evrópskra bílaframleiðenda hafa lækkað talsvert eftir Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi um 25% tollar á innfluttar bifreiðar og varahlutir taki gildi 3. apríl næstkomandi.

Sjá einnig]] Hækkar tolla á innflutta bíla

Hlutabréfaverð Mercedes-Benz og Porsche hafa lækkað um meira en 3% í dag en talið er þýsku lúxusbílaframleiðendurnir muni finna hvað mest neikvæðum áhrifum af tollunum, samkvæmt Bloomberg Intelligence. Talið er rekstrarhagnaður félaganna gæti dregist saman um allt fjórðung, verði af tollunum. Bent er á Porsche ekki með verksmiðju í Bandaríkjunum.

Gengi hlutabréfa Volkswagen hefur einnig fallið um tæplega 2% í dag og BMW um ríflega 2,5%.

Þetta er stór áskorun fyrir Volkswagen, BMW og Mercedes, segir René Tønder, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækis í bílaiðnaðinum við Børsen.

Stór hluti af bílunum sem þeir selja í Bandaríkjunum eru fluttir inn. Í tilviki BMW er hlutfallið um 60% og hjá Mercedes er það um helmingur. Ég tel reyndar viðbrögð markaðarins eru frekar mild, ef ég á segja satt. Ég hefði átt von á harðari viðbrögðum.

Fregnir af tollum í Bandaríkjunum koma á krefjandi tíma fyrir evrópska bílaiðnaðinn sem er þegar glíma við lækkandi bílaverð, minni framlegð og aukna samkeppni frá Kína. Margir bílaframleiðendur hafa ráðist í umfangsmiklar hópuppsagnir og lokað verksmiðjum upp á síðkastið.

Nafnalisti

  • Bloomberg Intelligence
  • Børsendanskur viðskiptamiðill
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • MercedesFinninn Valtteri Bottas sem var annar
  • Mercedes-Benzstærsti framleiðandi atvinnubíla í heiminum
  • René Tønder

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 229 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 84,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,84.