Fundu líkbrennsluofna, skó og beinflísar í „út­rýmingar­búðum“

Samúel Karl Ólason

2025-03-15 14:38

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Mexíkóskir sjálfboðaliðar í leit týndum ættingjum sínum römbuðu í síðustu viku á yfirgefinn búgarð sem hefur í kjölfarið verið lýst sem útrýmingarbúðum. Þar fundu sjálfboðaliðarnir þrjá líkbrennsluofna neðanjarðar, brenndar líkamsleifar, beinflísar og aragrúa skóa og annarra persónulegra muna.

Síðan búgarðurinn, sem er skammt frá bænum La Estanzuela í Jalisco héraði fannst hafa yfirvöld á svæðinu sagt þar hafi einnig fundist töluvert af skothylkjum og er talið staðurinn hafi verið notaður sem þjálfunarbúðir fyrir glæpasamtök.

Sjálfboðaliðarnir fundu búgarðinn eftir þeim barst nafnlaus ábending um hann, samkvæmt leiðtoga þeirra.

Rúmlega 120 þúsund Mexíkóar eru týndir, samkvæmt opinberum gögnum sem byrjað var safna árið 1962 og AP fréttaveitan vitnar í. Talið er það algjört lágmark.

Staðir sem þessir hafa reglulega í landinu á undanförnum árum. Er það að hluta til vegna þess ættingjar hinna týndu vinna í meira mæli þá vinnu sem yfirvöld hafi ekki gert nægjanlega vel hingað til. Það er leita týndu fólki.

Lögregluþjónar fundu búgarðinn fyrst í september og leituðu þá þar en þeir fundu ekki líkbrennsluna og hina munina, nokkrum skothylkjum og einhverjum beinflísum undanskildum. Lögregluþjónar fundu þó tvær manneskjur sem voru í haldi á bústaðnum og eitt lík vafið í plast.

Leitinni var þó hætt en ekki liggur fyrir af hverju.

Ekki búið bera kennsl á lík

Sjálfboðaliðarnir hafa birt myndir af þeim 493 munum sem hafa fundist á búgarðinum en samkvæmt frétt El País hefur fyrirspurnum rignt yfir þá frá ættingjum þeirra þúsunda sem eru týndir í landinu.

Í einhverjum tilfellum er fólk spyrjast fyrir um ættmenni sín sem hurfu fyrir mörgum árum og hafa þau engin svör fengið.

New York Times segir ekki búið bera kennsl á eitt lík í búgarðinum og er ekki heldur vitað hverjir eða hvaða glæpasamtök stjórnuðu honum. Ríkissaksóknari Mexíkó tók í þessari viku yfir rannsókninni ósk Claudia Sheinbaum, forseta Mexíkó.

Talið er mögulegt búgarðurinn hafi verið undir stjórn glæpamanna Jalicso-samtakanna. Það eru nokkuð umsvifamikil glæpasamtök sem hafa verið styrkja stöðu sína í Mexíkó á undanförnum árum og þá aðallega með framleiðslu Fentanyls og sölu þess í Bandaríkjunum.

Samtökin hafa einnig stundað ólöglegt skógarhögg, mansal og fjárkúgun, svo eitthvað nefnt.

Fentanyl hefur dregið fjölda fólks til dauða í Bandaríkjunum og víðar á undanförnum árum og hefur Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótað því beita her sínum gegn glæpasamtökum Mexíkó.

Þá hafa mikil átök milli glæpagengja í Mexíkó valdið gífurlegum usla og hafa fjölmörg ódæði verið framin þar vegna þeirra.

Segjast hafa verið þvingaðir til brenna lík

Spjótin hafa meðal annars beinst Jalisco samtökunum vegna umsvifa þeirra í samnefndu héraði og hafa þau verið bendluð við fjölda morða, mannshvarfa og fjöldagrafir sem fundist hafa á svæðinu.

Sjálfboðaliðarnir sem fundu búgarðinn segja í kjölfarið hafi þeir fengið skilaboð frá nokkrum aðilum sem sögðust hafa fengið þar þjálfun í vopnabeitingu og pyntingum. Þeir sögðu búgarðinn einnig hafa verið notaðan til láta fórnarlömb glæpamanna hverfa.

Leiðtogi sjálfboðaliðanna sagði skilaboðin hafa komið frá ungum frá öðrum héruðum Mexíkó sem hefðu verið plataðir til Jalisco undir fölskum forsendum og fluttir á búgarðinn. Einn maður sagði þeim hann hefði verið þvingaður til brenna lík og það hefði verið hluti af þjálfun hans.

Ef þeir neituðu voru þeir stundum myrtir og fóðraðir ljónum.

Nafnalisti

  • Claudia Sheinbaumborgarstjóri Mexíkóborgar
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • El Paísspænskt dagblað
  • Fentanylverkjalyf
  • Fentanylslyf
  • Jaliscoheimasvæði Jalisco New Generation Cartel, eins af öflugustu glæpasamtökum Mexíkó sem er þekkt fyrir að hafa lögreglumenn í vasanum
  • New York Timesbandarískt dagblað

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 576 eindir í 29 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 27 málsgreinar eða 93,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.