Illugi varar við ritskoðun „nýfasismans og gagnsóknar feðraveldisins“ - Eyða skjölum um Enola Gay -

Ritstjórn Mannlífs

2025-03-08 17:37

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Illugi Jökulsson varar við ritskoðun nýfasismans og gagnsóknar feðraveldisins.

Fjölmiðlamaðurinn orðsnjalli, Illugi Jökulsson skrifaði Facebook-færslu í dag þar sem hann vekur athygli á þeirri furðulegu staðreynd Bandaríkjastjórn Donalds Trump, hyggist láta þurrka út öllum opinberum skjölum um flugvélina sem varpaði fyrstu kjarnorkusprengjunni á borgaralegt skotmark í sögunni, Enola Gay.

Bandaríkjastjórn ætlar láta þurrka út úr opinberum skjölum allar tilvísanir til B-29 sprengjuflugvélarinnar Enola Gay, þar á meðal á fjarlægja þessa ljósmynd. Ástæðan fyrir þessu er ekki Bandaríkjastjórn farin skammast sín fyrir það þessi flugvél varpaði fyrstu kjarnorkusprengjunni á Hírósjíma 1945, heldur nafn vélarinnar (sem var nefnd eftir móður flugmannsins) inniheldur orðið Gay sem núverandi Bandaríkjastjórn telur geti verið hvetjandi fyrir samkynhneigða. Þessi saga mun, ótrúlegt nokk, vera dagsönn.

Varar Illugi lokum við ritskoðun nýfasistmans:

Á Vesturlöndum hafa sumir síðustu árin haft miklar áhyggjur af ritskoðun/sjálfsritskoðun sem fylgi góða fólkinu, öfgafemínisma og vók-liðinu. Það alveg en ritskoðun nýfasismans og gagnsóknar feðraveldisins sem er rísa mun verða mörgum, mörgum, mörgum sinnum hættulegri.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Enola Gayflugvél
  • Hírósjímajapönsk borg
  • Illugi Jökulssonrithöfundur og fjölmiðlamaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 208 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 5 málsgreinar eða 62,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,72.